Fasteignasalan Bær kynnir: Glæsileg 4 herbergja 123,0 fm þakíbúð, ásamt 33,4 fm bílskúr alls 156,4 fm með svölum í suður og sér þakgarði í suð-vestur. Bílskúr 33,4 fm að stærð. Sér bílastæði merkt B108. Eignin afhendist fullbúin tækjum í eldhúsi, harðparketi á gólfum en flísar á votrýmum, innfelldri lýsingu, kubbaljósum ásamt veggljósum í herbergjum. Afhending eftir samkomulagi.
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn frá sameign í rúmgott hol með skápum. Eldhús opið inn í stofu/borðstofu. Eldhúsinnrétting frá GKS. Eldhúsvaskur og blöndunartæki eru svört. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG; kæliskápur með frysti, uppþvottavél, spanhelluborð, veggofn og combi ofn. Eyjuháfur yfir helluborði. Á baðherbergi eru hvítar innréttingar, spegill með baklýsingu er yfir handlaug. Handklæðaofn, sturta með föstu gleri, flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús innan íbúðar með stálvaski og fráleggsborði, gólf flísalagt. Í svefnherbergjum og forstofu eru hvítir fataskápar. Gólfefni íbúðar er ljóst harðparket en gegnheilar flísar á vorýmum. Hurðir og karmar eru eikarhurðir, sólbekkir hvítir og plastlagðir. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara. Bílskúr og bílastæði inni í bílastæðahúsi, þar er einnig uppsett grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. Ljósleiðari er dreginn í tengikassa hverrar íbúðar.
Eignin er til afhendingar eftir samkomulagi.
Smyrilshlíð 14 er 5 hæða lyftuhús með 14 íbúðum, auk kjallara með sérgeymslum og bílastæðum og bílskúrum þar sem við á. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt. Innangengt er úr bílageymslu inn í stigagang. Á jarðhæð er aðalinngangur hússins, póstkassar og mynddyrasímar eru í anddyri. Úr anddyri er gengið inn í stigahús að lyftu ásamt sérgeymslum íbúða. Húsið afhendist fullbúið að utan, ásamt lóð og bílastæði. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa og einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate), pallar og gras er á þakgörðum en grjót á öðrum svæðum. Svalir eru staðsteyptar, svalahandrið úr álprófílum og gleri og svalagólf með viðarstiklum. Húsið er fulleinangrað að utan og klætt með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri, málaðir að innan en áklæddir að utan. Bílastæði eru malbikuð og hitalögn er í gagnstéttum. Sorpgeymslur eru niðurfelldar í gangstéttar við götu.
Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt (en þó breytilegt) 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.