Einstök eign fyrir þá sem vilja hafa gott næði og langt í næstu nágranna.
Melgerðisás 3, eða Harðangur eins og húsið er kallað í daglegu tali, byggt árið 1947 og hefur allt verið tekið í gegn og er sérlega falleg eign.
Á 1566m2 lóð er einnig nýlegur vandaður u.þ.b. 15m2 skúr sem er upphitaður.
110m2 einbýlishús sem hefur verið breytt í tvo íbúðarhluta og sérinngangur í báða. Á efri hæð er þriggja herbergja íbúð og stúdíóíbúð í kjallara.
Frábær staðsetning í Þorpinu, algerlega miðsvæðis, rétt við Þórsvölinn, Hamar og Glerárskóla.
Húsið er steypt og hlaðið, nýlega klætt með lituðu bárujárni, nýlegir gluggar og innréttingar, gólfefni og baðherbergi bæði.
Efri hæð: Komið er inn í forstofu með gráum máluðum veggjum, hvítum þiljum í lofti og teppalögðu gólfi.
Úr forstofunni er komið inn opið rými þar sem eru stofa og eldhús og gengið inn í herbergin tvö, gólf í þessum rýmum með harðparketi á.
Eldhúsið er með spónlagðri eikarinnréttingu, innbyggðum stállitum ofni og keramikhelluborði. Á vegg ofan við vaskaborð eru svartar mósaíkflísar. Uppþvottavél fylgir.
Baðherbergið er vandað og mjög snyrtilegt með ljósgráum flísum á gólfi og veggjum og ljósum mósaíkflísum á salerniskassa, vegghengt salerni, sturta með glervegg, rými fyrirr þvottavél á baðherbergi. Innréttingin er úr spónlagðri eik með dökkri borðplötu og hvítri handlaug.
Neðri hæð:
Þar er góð stúdíóíbúð, parket á gólfi, hvítsprautuð innrétting með ljósri borðplötu, eldavél með keramikhelluborði.
baðherbergi er með gráum flísum á gólfi, hvít innrétting með hvítri handlaug, vegghengt salerni, sturta.
Geymsla fylgir íbúðinni.
Helstu endurbætur:
- Nýleg klæðning á húsinu
- Nýlegir gluggar
- Þak er endurnýjað
- Ofnar endurnýjaðir
- Öll gólfefni
- Baðherbergi
- Eldhús
- Lóð er stór, 1566m2.