Fasteignaleitin
Opið hús:06. júlí kl 17:15-17:45
Skráð 2. júlí 2026

Lindasmári 45

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
92.1 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
845.820 kr./m2
Fasteignamat
73.450.000 kr.
Brunabótamat
53.300.000 kr.
Mynd af Ólafur Björn Blöndal
Ólafur Björn Blöndal
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2218926
Landnúmer
115454
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Yfirfarið/endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: 

LINDASMÁRI 45 - STÓR 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ STÓRUM AFGIRTUM SÉRGARÐI. 

Húsið er allt nýtekið í gegn að utan, m.a nýlegt þak, sprunguviðgert og málað ásamt að búið er að skipta um gler þar sem þurfti. 

Mjög vel skipulögð 3ja herbergja 92 fmíbúð á 1. hæð með sérgarði

Nánari lýsing;
 Komið er inn í forstofu/gang með fatahengi og er þaðan gengið í allar vistarverur íbúðarinnar. 
Eldhús er með innréttingu með viðaráferð og sprautulökkuðum flötum, gott bekkjarpláss, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur við glugga sem snýr út í garðinn. Búið að endurnýja eldhústæki. 
Inn af eldhúsi er þvottahús/geymsla.
Stofan er ágætlega rúmgóð og björt með hurð út á afgirtan sérafnotareit með tyrfði lóð og hellulagðri verönd ásamt hárri skjólgóðri girðingu með hliði út.
Stofan var áður nokkuð stór, en hluti af henni hefur verið stúkaður af fyrir auka herbergi/vinnuaðstöðu. 
Rúmgott hjónaherbergi með skápum.
Mjög rúmgott barnaherbergi með skápum. 
Baðherbergi er flísalagt , baðkar með sturtu og innrétting. 
Gólfefni; harðparket er á öllum rýmum nema þvottahúsi, baðherbergi og forstofu en þar eru flísar, búið er að skipta um innihurð
Íbúð á frábærum stað með tilliti til skóla, leikskóla,íþróttamannvirkja, verslana og þjónustu -  þá eru fallegar gönguleiðir um svæðið.
Sér afnotareitur fylgir eigninni, um er að ræða garð mót s-vestri sem er afar skjólsæll og sólríkur.

Sameign hússins sem er snyrtileg.  Auk þess fylgir sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
 
Húsið sjálft stendur ekki út við götu og er því lítið ónæði frá umferð og afar skjólsælt umhverfi.

Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/05/202247.100.000 kr.67.950.000 kr.92.1 m2737.785 kr.
23/11/201835.750.000 kr.46.000.000 kr.92.1 m2499.457 kr.
22/02/200820.230.000 kr.24.250.000 kr.92.1 m2263.300 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 43
Bílastæði
Skoða eignina Holtsvegur 43
Holtsvegur 43
210 Garðabær
79.5 m2
Fjölbýlishús
211
917 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 63
Hlíðarhjalli 63
200 Kópavogur
82.9 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 1G
Skoða eignina Eskiás 1G
Eskiás 1G
210 Garðabær
80.5 m2
Fjölbýlishús
413
968 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b (308)
Copy of Sæþór_vefur (3).jpg
Hafnarbraut 10b (308)
200 Kópavogur
95.9 m2
Fjölbýlishús
322
938 þ.kr./m2
89.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin