Fasteignaleitin
Skráð 31. ágúst 2026

SPÁNAREIGNIR - Benijofar

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
106 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
41.300.000 kr.
Fermetraverð
389.623 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
204310826
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Góðar svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* *STÆÐI Í BÍLAKJALLARA* *SAMEIGINLEG SUNDLAUG OG SÓLBAÐSAÐSTAÐA Á ÞAKI*


Fallegar og og vel hannaðar íbúðir í Benijofar, ekta spænskum bæ, um 45 mín. akstur suður af Alicante. Stutt er í alla nauðsynlega þjónustu, verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa og La Finca sem er glæsilegur PGA golfvöllur. Einnig eru fleiri góðir golfvellir skammt undan, s.s. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869


Nánari lýsing:
3ja herb. íbúð (90 fm og 10-15 fm verönd): Gengið er inn í forstofu og þar inn af á aðra hönd eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi með sturtu. Á hina hönd er gengið inn í opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Úr stofu er gengið út á góðar svalir og þar er jafnframt þvottaðstaða. Sameiginleg sundlaug er á þaki hússins auk sólbaðs- og grillaðstöðu. 

Verð miðað við gengi 1 Evra=145ISK
2ja herb. íbúð, þ.e. 1 svefnh. + 1 baðh. frá 249.900 evrur (ISK 36.200.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn.
3ja herb. íbúð, þ.e. 2 svefnh og 2 baðh. frá 284.900 evrur (ISK 41.300.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn.
4ja herb. íbúð, þ.e. 3 svefnh og 2 baðh. frá 396.900 evrur (ISK 57.550.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn.


Stæði í bílakjallara og heimilistæki fylgja öllum íbúðum.

Benijofar er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og götumarkaði, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Benijofar. Aðeins 8 km. frá fallegu ströndunum á Costa Blanca og ekki nema 2-3 mín akstur eða góður göngutúr til Ciudad Quesada og Dona Pepa, sem eru vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið. Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Benijofar,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
204310826

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vallakór 2A
Bílastæði
Skoða eignina Vallakór 2A
Vallakór 2A
203 Kópavogur
93.2 m2
Fjölbýlishús
312
847 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
Opið hús:31. ágúst kl 17:00-17:45
303 Steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
88.7 m2
Fjölbýlishús
312
957 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 3 íbúð 107
Grásteinsmýri 3 íbúð 107
225 Garðabær
112.4 m2
Fjölbýlishús
312
880 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Maríubakki 2
Skoða eignina Maríubakki 2
Maríubakki 2
109 Reykjavík
86.2 m2
Fjölbýlishús
32
695 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin