Hannes Steindórsson kynnir:
Endurbyggt hús við Öldugötu 29 Hafnarfirði.Rúmgóð og vel skipulögð hæð og ris ásamt bílskúr sem búið er að breyta í stúdíó íbúð, samtals um 163 m².
Hæðin er nýlega endurbyggð að mestu leyti og risið er nýtt. Bílskúr tekinn í gegn frá a-ö. Gluggar, þak, lagnir, allt að innan og fleira.
Allar innréttingar, skápar, gólfefni, þak, gler, gluggar, rafmagn og fleira nýtt. Mikil lofthæð.Eigninni fylgir verönd 10,3 m². Eignin er á tveimur hæðum og býður upp á björt og góð alrými, rúmgóð svefnherbergi og gott fjölskylduskipulag.Forstofa: Flísalögð forstofa með skápum.
Baðherbergi 1: Flísalagt baðherbergi með fallegri innréttingu sturtu og glugga.
Stofa og borðstofa: Parketlagðar og bjartar mynda rúmgott og bjart alrými. Þar er gott pláss fyrir bæði setustofu og stórt borðstofuborð.
Eldhús: Falleg innrétting og gott skápapláss.
Svefnherbergi 1: 10,5 m² parketlagt svefnherbergi með skápum.
Fallegur hringstigi tengir hæðina við rishæðina. Svalir á rishæð.Svefnherbergi 2: 14,1 m² parketlagt hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi út á svalir.
Svefnherbergi 3: 13,9 m² parketlagt svefnherbergi með skápum.
Baðherbergi 2: Flísalagt baðherbergi með sturtu og glugga.
Á milli herbergjanna er stigi/gangur sem tengir rými hæðarinnar saman.Þvottahús: Sér þvottahús á jarhæð 5,4 m².
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð 10,7 m².
Bílskúr/Aukaíbúð: 39 m² fm bílskúr með sérinngangi sem búið er að innrétta sem stúdíó íbúð.
Svefnherbergi, stofa eldhús og baðherbergi í bílskúr.
Bílastæði: Sér bílastæði fyrir framan bílskúr.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is