Fasteignaleitin
Opið hús:18. maí kl 16:15-17:00
Skráð 13. maí 2026

Tjarnarlundur 16e

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
82.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
602.657 kr./m2
Fasteignamat
45.400.000 kr.
Brunabótamat
41.800.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2151286
Landnúmer
149616
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Óþekkt
Gluggar / Gler
Gluggar eru upprunalegir, að undanskildum glugga í eldhúsi sem hefur verið endurnýjaður.
Þak
Þarf að setja lofttúður og skoða þakkant til að klára framkvæmdir á þaki, sbr. yfirlýsingu húsfélags 12.5.2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steyptar svalir til suðurs
Lóð
3,49
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
- Sjá yfirlýsingu húsfélags 12.5.2026 og aðalfundargerð dags. 4.2. 2026
Fasteignasalan Hvammur 466 1600 

Tjarnarlundur 16e - Björt og snyrtileg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi á Brekkunni - Stærð 82,8 m², þar af er geymsla 4,8 m²


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og búr, stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi auk sér geymslu á jarðhæð.

Forstofa er með vínylparketi á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með ljósri innréttingu, með flísum á milli skápa og stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Inn af eldhúsi er búr/geymsla með hillum.
Stofan er rúmgóð með vínylparketi á gólfi. Þaðan er útgengt út á steyptar suður svalir.
Á baðherbergi er dúkur á gólfi og hluta veggja, ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél, wc og sturtuklefi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með vínylparketi á gólfum. Í öðru þeirra er stór innfelldur fataskápur en í hinu er einfaldur fataskápur.
Sér geymsla á jarðhæð er skráð 4,8 m² að stærð.

Annað
- Vínylparket var sett á gólf fyrir um 5 árum síðan.
- Mynddyrasími.
- Húsið var málað að utan 2021.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Stutt er í leik- og grunnskóla sem og KA svæðið.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/02/202125.700.000 kr.25.400.000 kr.82.8 m2306.763 kr.
11/03/201615.400.000 kr.18.300.000 kr.82.8 m2221.014 kr.
03/05/201111.400.000 kr.12.000.000 kr.82.8 m2144.927 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 11
IMG_5583.JPG
Skoða eignina Hafnarbraut 11
Hafnarbraut 11
200 Kópavogur
69.9 m2
Fjölbýlishús
212
957 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarstræti 21
Skoða eignina Hafnarstræti 21
Hafnarstræti 21
600 Akureyri
118.7 m2
Hæð
413
522 þ.kr./m2
62.000.000 kr.
Skoða eignina Tjarnargata 10
Skoða eignina Tjarnargata 10
Tjarnargata 10
101 Reykjavík
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 510
Bílastæði
Opið hús:16. maí kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 510
105 Reykjavík
145.5 m2
Fjölbýlishús
423
1457 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin