Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Suðurhella 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
123.1 m2
4 Herb.
Verð
79.500.000 kr.
Fermetraverð
645.816 kr./m2
Brunabótamat
71.650.000 kr.
Byggt 2024
3. hæð
Svalir
Fasteignanúmer
25318141
Húsgerð
Fjölbýlishús

Aldir Fasteignasala kynnir til sölu nýjar og glæsilegar fullbúnar tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í fimm hæða staðsteyptu álklæddu lyftuhúsi við Suðurhellu 16 í Hafnarfirði. Allar íbúðir afhendast með innréttingum og skápum frá Axis, gólfefni frá Birgisson og full frágenginni sameiginlegri lóð með leiktækjum á bak við hús. Traustur verktaki.   Gott fm verð. Næg bílastæði og hægt er að sækja um hlutdeildarlán á þessa íbúð.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun Gunnlaugur  A. Björnsson lgf., gab@aldirfasteignir.is, 617-5161

HLUTDEILDARLÁN ER Í BOÐI FYRIR ÞESSA ÍBÚÐ - KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ!


Nánari lýsing.
Íbúð 306 er 123,1 fm fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð og skiptist í anddyri, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu með útgengi á svalir og útsýni yfir hraunið. Næg bílastæði. 
Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi. 
Borð- og setustofa: Í opnu björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á sér svalir íbúðar sem snúa til suðurs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir hraunið og til fjalla. 
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi. 
Svefnherbergi 1: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi. 
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili og gluggi með opnanlegu fagi . Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson. 
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Húsið stendur á lóð sem markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem fyrir framan hús er fjöldi bílastæða og búið að gera ráð fyrir hleðslustöðvum og á bak við hús er sameiginlegur garður með leiktækjum og sígrænum gróðri.

Fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru. Sjón er sögu ríkari!
 
Fyrir nánari upplýsingar og skoðanir hafið samband við: 
Gunnlaugur  A. Björnsson lgf., gab@aldirfasteignir.is, 617-5161
Brynjólf Snorrason lgf., brynjolfur@aldirfasteignir.is, 896-2953
Önnu Sigurðardóttir lgf., anna@aldirfasteignir.is, 898-2017


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Strandgata 26 íb. 501
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 501
220 Hafnarfjörður
126,5 m2
Fjölbýlishús
312
1240 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 402
Bílastæði
Baughamar 5 íb. 402
221 Hafnarfjörður
116,2 m2
Fjölbýlishús
423
765 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 20 íb. 205
Áshamar 20 íb. 205
221 Hafnarfjörður
109 m2
Fjölbýlishús
423
733 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 2
Efsta hæð
Skoða eignina Nónhamar 2
Nónhamar 2
221 Hafnarfjörður
109,1 m2
Fjölbýlishús
43
769 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin