Íbúð 206 í Eskiás 6 er 3ja herbergja 93,7 fm íbúð. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning. Mjög vel skipulögð íbúð með tveim rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara og geymslu innan íbúðar. Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu og vinnueyju.
Fáðu sent söluyfirlit, smelltu hér
Bókið skoðun hjá Gunnari Bergmann í síma: 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isÍbúð 206 á 2. hæð með 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu innan íbúðar. Rúmgott alrými og opið eldhús með vinnueyju. Horn íbúð. Góðar svalir sem snúa í suðvestur. Fallegs ljóst harðviðarparket á gólfum.
- Innréttingar í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS.
- Eldhústæki eru; blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum. Innbyggð uppþvottavél í eldhúsinnréttingu.
- Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
- Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe.
- Ljósleiðarar frá OR og Mílu eru í íbúðinni.
- Rafbílahleðslukerfi er sameiginlegt ásamt nóg af bílastæðum
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.