Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2026

Miðholt 5

RaðhúsNorðurland/Þórshöfn-680
106.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
27.700.000 kr.
Fermetraverð
259.850 kr./m2
Brunabótamat
62.500.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
21679141
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasala Þórshafnar kynnir:


 

Miðholt 5
er 106,6 fermetra, björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð í steyptu parhúsi, byggðu árið 1989.
Íbúðin skiptist í:
Forstofa,flísar á gólfi og lítið fatahengi, til hægri eru dyr að þvottahúsi og geymslu, dúkur á þvottahúsgólfi en málað gólf í geymslu.
Við gang inn af forstofu er stórt eldhús á hægri hönd, upphafleg innrétting í þokkalegu standi.
Stofa við hlið eldhúss er aðskilin frá gangi með gluggum og hurð en milliveggur milli eldhúss og stofu nær ekki upp í loft. Panelklætt loft í stofu og eldhúsi er tekið upp og fylgir þakhalla. Úr stofu eru dyr að rúmlega 20 fm sólpalli.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir fimm árum, flísalagt og hiti í gólfi, sturtuhorn með botn í gólfhæð, salerni á gólfi og lítil innrétting.
Þrjú svefnherbergi eru samhliða að norðanverðu í íbúðinni, öll með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfi. Miðherbergið er lítið en endaherbergin rúmgóð. 
Köld útigeymsla er undir þakskeggi við hlið inngangs.
Þekktar endurbætur:
Hitatúba og hitakútur eru síðan 2008-9,gler í stofuglugga er nýlegt, baðherbergi er endurnýjað 2021, þak er yfirfarið og málað sumarið 2025.
Fyrirsjáanlegt viðhald: 
Gluggar virðast ófúnir en þarfnast málunar, móða milli glerja í fjórum rúðum, nýtt gler og gluggalistar er æskileg framkvæmd á næstu árum.
Timbur í þakskeggi þarfnast málunar og mögulega þarf að endurnýja einhver borð, steyptir útveggir líta þokkalega út en styttist í málningu.
Parket í íbúðinni er líklega upprunalegt, í góðu lagi að sjá nema á eldhúsgólfi, það er farið að láta á sjá. 

 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Þórshafnar slf.
fasteignir.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ennisbraut 5
Skoða eignina Ennisbraut 5
Ennisbraut 5
540 Blönduós
75.9 m2
Atvinnuhúsn.
1
316 þ.kr./m2
24.000.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Grænlandsleið 19
Til leigu
3D Sýn
Bílskúr
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús
524
665 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Grænlandsleið 19
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús
524
665 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin