Fasteignaleitin
Skráð 22. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Nýbýlavegur 56

HæðHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
163.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.500.000 kr.
Fermetraverð
689.761 kr./m2
Fasteignamat
93.450.000 kr.
Brunabótamat
80.400.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1965
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064503
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Endurnýjað að mestu
Frárennslislagnir
Ekki vitað/Engin vandamál
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Þak málað 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Nýbýlavegur 56 Kópavogi

--- Mikið endurnýjuð sérhæð með fjórum svefnherbergjum, bílskúr og fallegu útsýni ---

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 5 herbergja (4 svefnherbergi) 163,1 fermetra efri sérhæð með sérinngangi, þar af 28,2 fermetra bílskúr, á þessum frábæra útsýnisstað við Nýbýlaveg í Kópavogi. Glæsilegt útsýni til norðurs að Esjunni, yfir Fossvogsdalinn og víðar. Góðar skjólgóðar svalir til suðvesturs.

Eignin hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. M.a. er húsið nýlega múrviðgert og málað (2025). Einnig voru útitröppur endursteyptar og þakið yfirfarið og málað. Árið 2023 var skipt um alla glugga sem voru komnir á tíma. Þá er búið að draga nýtt rafmagn í nánast alla hæðina, endurnýja rofa/tengla innan íbúðar og skipta um innsláttarrofa í rafmagnstöflu. Eldhúsið var endurnýjað árið 2022 og gólfefni (utan baðherbergis) voru endurnýjuð árið 2024. Auk þess er búið að endurnýja innihurðar og teppi/skápa í stigagangi/stigapalli.


Eignin skiptist í forstofu, stigagang/stigapall, rúmgóða stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, tvær geymslur. Rúmgóðar suðvestursvalir eru út frá stofu. Mjög gott skipulag, stórir gluggar sem hleypa inn góðri birtu og glæsilegt útsýni. Góður 28,2 fermetra bílskúr.

Lýsing eignar:

Stigahol: Gengið inn um sérinngang í rúmgott stigahol með flísum á gólfi. Teppi á stiga og stigaholi ásamt skápum. Stórir gluggar til norðurs og austurs í stigaholi. 
Geymsla I: Er staðsett inn af forstofu. Nýtist sem gott fatarými eða geymsla.
Stofa: Með nýlegu harðparketi. Stofa er opin við borðstofu og eldhús. Gluggar til suðurs, vesturs og norðurs með afar fallegu útsýni að Esjunni, Fossvogsdalnum og víðar. Útgengi á svalir úr stofu.
Svalir: Snúa til suðurs og er útgengi frá stofu. 
Borðstofa: Með nýlegu harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs.
Eldhús: Er nýlega endurnýjað á afar smekklegan máta. Fallegar dökkar eldhúsinnréttingar með stórri eyju og harðparket á gólfi. Innb. kæliskápur með frysti, innb. uppþvottavél, auka kæliskápur í eyju, Samsung bakaraofn, vínkælir og spansuðu helluborð. Gluggi til norðurs með afar fallegu útsýni yfir Fossvogsdalinn og til fjalla. 
Þvottaherbergi: Með vinylflísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og glugga til norðurs.
Svefngangur: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Með harðparketi og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi, skápum og glugga til austurs.
Hjónaherbergi: Er stórt, með harðparketi á gólfi og góðu skápaplássi. Gluggar til vesturs og útgengi á svalir.
Baðherbergi: Með dúk á gólfi og flísum á veggjum. Baðkar með sturtutækjum. Gluggi til austurs. Innrétting við vask.
Geymsla II: Er staðsett á jarðhæð hússins frá sameign. Málað gólf og hillur.

Bílskúr: Er 28,2 fermetrar, með köldu vatni, rafmagni og glugga til vesturs. 

Hús að utan: Virðist vera í ágætis ásigkomulagi. Húsið múrviðgert og málað sumarið 2025 ásamt þaki. Vísast nánar til lýsingar hér að ofan.
Lóð: Er tyrfð og með steyptri stétt að húsi og fyrir framan bílskúra. Þessi hæð má útbúa verönd sunnan megin við húsið skv. skriflegu samkomulagi við nágranna 
Staðsetning: Er afar góð miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Stutt í fallegar hjóla- og gönguleiðir við Fossvogsdalinn.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/02/202265.200.000 kr.75.000.000 kr.163.1 m2459.840 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lundur 92
Bílastæði
Skoða eignina Lundur 92
Lundur 92
200 Kópavogur
112.4 m2
Fjölbýlishús
32
978 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 13A
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 13A
Hafnarbraut 13A
200 Kópavogur
135.3 m2
Fjölbýlishús
413
812 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 12
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 12
Naustavör 12
200 Kópavogur
108.2 m2
Fjölbýlishús
312
1025 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
192 m2
Fjölbýlishús
212
572 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin