Valborg - fast. og ráðgj. ehf kynnir í einkasölu bjarta 3ja herbergja íbúð á 4. hæð við Hátún 6B, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 030401, fastanúmer 201-0280 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin telur anddyri, eldhús, opið rými sem rúmar stofu og borðstofu, svefnherbergisgang þar sem eru barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Birt stærð eignarinnar er 106,5 m², íbúð er 99,9 m² ásamt geymslu 6,6 m² á jarðhæð.Nánari lýsing:Anddyri: Fataskápar og stór spegill með ljósum fyrir ofan. Flísar á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og bjart með eikarinnréttingu og flísum á milli skápa. Bakaraofn í vinnuhæð. Gas- og keramik helluborð. Nýleg simens uppþvottavél sem fylgir. Góður borðkrókur við glugga. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Opið rými sem rúmar stofu og borðstofu. Góðir gluggar með útsýni. Svalir sem snúa í suðaustur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Gott barnaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott hjónaherbergi með stórum skápum með spegli. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með góðu hillu- og skápaplássi. Baðkar með sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Gott þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með skolvaski og hillur. Flísar á gólfi.
Geymsla: Hillur og gólf lakkað.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Eignin Hátún 6B er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt 030401, fnr. 201-0280, birt stærð 106.5 m², íbúð er 99,9 m² og geymsla er 6,6 m².Eignin er mjög vel staðsett í grónu hverfi, öll helsta þjónusta í göngufæri. Almenningssamgöngur eru í góðu aðgengi og stutt á allar stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og löggiltur fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.