Borgir fasteignasala kynnir eignina Elliðabraut 20, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-02, fastanúmer 250-7897 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Elliðabraut 20 er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 80.0 fm. Íbúð 72,9 fm geymsla 7,1 fm
Um er að ræða bjarta og fallega 3 herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi að Elliðabraut 20. Húsið er byggt af Mótex árið 2020, fjöldi íbúða í húsinu eru 20. Mikið er lagt upp úr hljóðvist og loftgæði.
Aukin lofthæð er í þessari eign sem er einn af sterkum kostum eignarinnar og gefur íbúðinni einstaklega bjart og rúmgott yfirbragð. Á gólfunum er harðparket frá Birgisson nema á baðherbergi þar eru flísar. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Hvítir skápar upp í loft frá Axis. Innfelld lýsing frá Rafkaup. Svalirnar eru 12,5 fm. heimilt er að setja svalalokun.
Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstakt loftræstikerfi er í íbúðinni. Kerfið hefur loftskipti með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu og soga lofti út úr baði/þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki er þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar. Öryggiskerfi er í sameign og í bílakjallara. Djúpruslagámar eru í jaðri lóðar á tveimur stöðum með flokkun. Sameign er rúmgóð og björt.
Eignin getur verið laus fljótlega.
Nánari upplýsingar veita:Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór lgf, í síma 6915123, tölvupóstur bjarklind@borgir.is.
Nánari lýsing :
Forstofa: Harðparket á gólfi, þrefaldir fataskápar
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápar
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi tvöfaldur fataskápur
Baðherbergi: Baðinnrétting. Hreinlætistæki og handklæðaofn frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Gólfið er flísalagt og veggir að hluta upp í loft. Walk in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurkara
Eldhús: Harðparket á gólfi, innrétting með vaski frá Grohe blöndunartækum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru að gerðinni AEG frá Ormsson, innbygð uppþvottavél
Stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi gengið út um rennihurð út á rúmgóðar 12,5 fm svalir, gólfsíðir gluggar að hluta. Heimilt er að loka svölunum með svalalokun
Geymsla: Geymsla er í kjallara
Umhverfi: Norðlingaholt er í nágrenni við Rauðhól, Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðavatn en þar eru margar góðar gönguleiðir og stutt í náttúruna. Nýlega opnaði Bónus verslun í göngufæri við eignina. Einnig er Norðlingaskóli og leikskólinn Rauðhóll í göngufæri. Umhverfis húsið eru leiktæki, Björnslundur og einnig lítil tjörn sem vinsælt er að gefa fuglunum, margar gönguleiðir þ.a.s í kringum Elliðavatn og Rauðavatn. Vinsælt hefur verið á veturna að skauta á Rauðavatni.