BYR fasteignasala kynnir í einkasölu JAÐAR, 701 Egilsstaðir. Jörðin Jaðar ásamt íbúðarhúsi ásamt útihúsum, jörðin nær útí LagarfljótFrá Egilsstöðum er ekið að Jaðri um Skriðdals- og Breiðdalsveg nr. 95 áfram um Upphéraðsveg nr. 931 um Jaðarsveg að Jaðri. Smellið hér fyrir staðsetningu. Jörðin Jaðar er nýbýli úr Vallarneslandi, jörðin liggur á vestur- og norðurhluta nesins meðfram Lagarfljóti og þaðan austur að Grímsá inn á móts við Ketilsstaði.
Eingöngu er verið að selja jörð og húsakost, eignin selst án bústofns, véla og framleiðsluréttar.
Jörðin býður uppá ýmis tækifæri í bússkap og ferðamennsku, einungis 16 mín akstur til Egilsstaða, 7 klst og 29 mín akstur til Eyrarbakka.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |Jörð, skráð 00, staðfest stærð liggur ekki fyrir.
Jörðin er að mestu gróin, lággróður/kjarr er á stöku stað, stærð jarðarinnar er 400 ha, óstaðfest í landeignaskrá, (ef mælt er út í mitt Lagarfljót þá er hún rúmir 700 ha)
landnúmer 157517.Ræktað land, skráð 01, 15,0 ha.
Lax-/silungsveiði, skráð 02.
Einbýlishús, skráð bygging 03.0101, byggingarár 1909, steypt hús, kjallari hæð og ris, 375.2 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS
Fjárhús, skráð bygging 06.0101, byggingarár 1952, 228.1 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Hesthús, skráð bygging 07.0101, byggingarár 1952, 53.2 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Hlaða, skráð bygging 08.0101, byggingarár 1952, 131.1 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Geymsla, skráð bygging 09.0101, byggingarár 1958, 37.6 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Fjós, skráð bygging 12, byggingarár 1958, 62.4 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Fjós, skráð bygging 17, byggingarár 1973, 53.9 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Allar fasteignir á jörðinni þarfnast alsherjar standsetningar/endurnýjunar og yfirferðar að innan og utanverðu, íbúðarhús og útihús eru í mjög lélegu ástandi.