Borg fasteignasala kynnir eignina
Klukkuberg 2 í Hafnarfirði sem er glæsilegt
242 fm endaraðhús.
Hér er á ferðinni einstaklega fallegt og vel skipulagt endaraðhús á tveimur hæðum, staðsett á eftirsóttum stað við Klukkuberg í Hafnarfirði.Á efri hæð: Stofa/borðstofa og eldhús, gesta salerni, svefnherbergi, hol/forstofa og bílskúr. Gengið er inn í forstofu úr henni er innangengt í bílskúr.
Stofan/borðstofan/eldhús er sérlega bjart og mikil lofthæð, þaðan er útgengi út á svalir. Frá svölunum er hægt að ganga niður á skemmtilegan pall á jarðhæð, sem tengir við fallegan stóran garð.
Úr stofunni er gott flæði inn í vandað og uppgert eldhús.
Eldhúsið er einstaklega smekklegt, með miklu skápaplássi, góðu vinnuplássi og stein á borðum, setu aðstaða er við innréttinguna. Fallegt útsýni er úr eldhúsi til suðurs og vesturs.
Á hæðinni er einnig svefnherbergi og uppgert gestasalerni með sturtu.
Bílskúr er veglegur, gott geymsluloft inn af honum (en einnig yfir holi við inngang), heitt og kalt vatn, ný bílskúrshurð.
Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, stórt opið rými, baðherbegi, þvottahús, og pallur.
Hjónaherbergið er veglegt, inn af því er fataherbergi.
Barnaherbergin eru einnig í góðri stærð og vel skápum búin. Þar er einnig opið og notalegt rými sem í dag er nýtt sem
sjónvarpshorn/kósýstofa, sem gefur fjölskyldunni gott aukarými til samveru.
Baðherbergið er afar veglegt búið baðkari og góðri sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf og hefur verið tekið í gegn á mjög smekklegan hátt.
Pallurinn er afgirtur með skjólgirðingu sem veitir mikið næði.
Þvottahús er einnig á neðri hæðinni en úr því er útgengt út í garð að suðvestanverðu.
Gólfefni: parket hefur verið pússað og lítur því vel út flísar á votrýmum.
Hér er á ferðinni einstök eign í fjölskylduvænu og eftirsóttu umhverfi. Stutt er í grunn- og leikskóla, auk þess sem golfvöllur er í þægilegu göngufæri. Eignin hentar því sérstaklega vel fjölskyldum sem kunna að meta gott nærumhverfi, útivist og þægilega staðsetningu.Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.