Eignamiðlun kynnir:
Klettamói 2
Hlutdeildarlán í boði!
Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu tveggja hæða fjölbýlishúsi í Móabyggð í Þorlákshöfn. Tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.
Bókið skoðun hjá Alfreð Valencia löggiltur fasteignasali, sími 776-2150, alfred@eignamidlun.is
Glæsilegar nýjar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í nýju tveggja hæða fjölbýli í Móabyggð í Þorlákshöfn. Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum.
Íbúð merkt 102 er 71,1 fm og er 3ja herbergja með eldhúsi með HTH innréttingu og AEG tækjum, stofu, 2 svefnherbergjum með góðu skápaplássi og baðherbergi með snyrtilegri HTH innréttingu, sturtu,þvottaaðstöðu, veggföstu salerni og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Sérafnotaflötur. Sérinngangur í allar íbúðir. Sérgeymsla innan íbúðar. Bílastæði á lóð með möguleika á rafhleðslu. *** Smellið hér til að fá sent söluyfirlit ***
* Stærð íbúða er frá 70 - 100,4 fm.
* Þriggja til fjögurra herbergja íbúðir.
* HTH innréttingar, AEG tæki.
* Frábær staðsetning í nýju hverfi.
* Geymsla fylgir öllum íbúðum.
* Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæði.
* Afhending við kaupsamning
Húsið er staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 8 íbúðir. Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins verði hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum. Allar íbúðir hafa sérinngang. Bílastæði á lóð fyrir hverja íbúð. Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar. Byggingaraðili er Verkeining. Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.
*** Smellið hér til að opna sölusíðu Móabyggðar ***
Við sýnum samdægurs - nánari upplýsingar veita:
Alfreð B. Valencia löggiltur fasteignasali, sími 776-2150, alfred@eignamidlun.isRögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson lögfr. og löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook