Björt og vel skipulögð mikið endurnýjuð 4ra herbergja endaíbúð á 3ju hæð í lyftuhúsi með tveimur lyftum við Ljósheima 14-18 í Reykjavík.
Eignin er í fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald og er viðhaldslítil en skipt var um glugga á vesturhlið 2023. Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð.
Eignin er laus við kaupsamning.*** Smellið hér til að sækja söluyfirlit ***Bókið skoðun hjá Magnúsi Þóri í síma 895-1427 eða á magnus@eignamidlun.isEignin er skráð hjá FMR sem 102,0 fm og þar af er 4,7 fm geymsla.Nánari lýsing:
Forstofa hefur parket á gólfi en þar eru góðir
fataskápar og handklæðaofn.Eldhús hefur parket á gólfi en þar er hvít nýleg innrétting, span helluborð, blástursofn og uppvöskunarvél.
Gert er ráð fyrir þvottavél í eldhúsi.Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými með útgengt út á svalir en þar er parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með flísalagðri walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru þrjú og hafa parket á gólfi.
Útgengt er út úr einu herbergjana á
svalir sem snúa í vestur.Sameign: Snyrtileg sameign er búin eftirlitskerfi þar sem er sameignlegt þvottahús og hjólageymsla. Sameiginlegt salerni fyrir íbúa er í sameign hússins.
Sér geymsla er í sameign ásamt
tveimur sameiginlegum þvottaherbergjum. Hjólageymsla er í sameign.
*Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt eldunartækjum 2021
*Baðherbergi endurnýjað 2021
*Parket endurnýjað 2021Eignin er afar miðsvæðis, örstutt í alla helstu þjónustu, leik-, grunn- og menntaskóla, Laugardalinn ofl.
Verslunarmiðstöðin við Glæsibæ, Vogaskóli og Menntaskólinn við Sund eru í göngufæri ásamt því að stutt er í Laugardalinn og Elliðarárdalinn í útivist.
Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson lögg. fasteignasali í síma 895-1427 eða magnus@eignamidlun.is