Fasteignaleitin
Skráð 28. okt. 2026

Hjaltabakki 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
85.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
698.950 kr./m2
Brunabótamat
46.070.000 kr.
Byggt 1968
2. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20477926
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

RE/MAX kynnir fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Hjaltabakka 4 í Reykjavík. Eignin er samtals 85,7 fm, þar af er íbúðin 76,9 fm og sérgeymsla í kjallara 8,8 fm.
Íbúðin er vel skipulögð og býður upp á björt og notaleg rými, tvö rúmgóð svefnherbergi, fallegt eldhús með nýlegri innréttingu og rúmgóða stofu með útgengi á svalir. Raflagnir og rafbúnaður í íbúðinni hafa verið endurnýjuð að fullu.
Eignin er staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Við húsið eru rúmgóð sameiginleg bílastæði ásamt nokkrum hleðslustöðvum fyrir rafbíla.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunar: Sigrún Matthea, löggiltur fasteignasali, tekur vel á móti öllum fyrirspurnum og veitir með ánægju frekari upplýsingar um eignina í síma./ Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali Sími: 820-0490 | Netfang: gudrun@remax.is

Nánari lýsing eignar

Forstofa: Rúmgóð forstofa með góðum fataskáp.
Stofa: Björt og notaleg stofa með harðparketi á gólfi og útgengi á góðar svalir.
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús með nýlegri innréttingu, góðu skápaplássi og rúmgóðri vinnuaðstöðu. Uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Gott svefnherbergi með rúmgóðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Samþætt þvottavél og þurrkari (2 í 1) fylgir eigninni við sölu.
Geymsla og sameign: Sérgeymsla í kjallara, 8,8 fm, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: Við húsið eru rúmgóð sameiginleg bílastæði og nokkrar hleðslustöðvar fyrir rafbíla, sem er góður kostur fyrir rafbílaeigendur.
Upplýsingar um eignina:
-          Raflagnir: Raflagnir og rafbúnaður í íbúðinni hafa verið endurnýjuð.
-          Parket er á gólfum fyrir utan votrými.
Staðsetning og nærumhverfi
Hjaltabakki 4 er staðsettur í grónu og fjölskylduvænu íbúðahverfi í Reykjavík. Í næsta nágrenni eru leikskólar, grunnskólar, matvöruverslanir og fjölbreytt þjónusta.
Hér er gott tækifæri fyrir þá sem vilja búa í notalegu og rótgrónu hverfi þar sem helstu þægindi daglegs lífs eru innan seilingar.
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, svölum og nýlegri eldhúsinnréttingu. Endurnýjaðar raflagnir, góður tækjabúnaður sem fylgir eigninni og aðgengi að hleðslustöðvum fyrir rafbíla eru meðal kosta eignarinnar.
Eign sem vert er að skoða!
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar
Guðrún Þórhalla Helgadóttir Löggiltur fasteignasali | RE/MAX Sími: 820-0490 Netfang: gudrun@remax.is
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sandavað 1
Hleðslustöð
Skoða eignina Sandavað 1
Sandavað 1
110 Reykjavík
78,8 m2
Fjölbýlishús
211
760 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 401.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
97,2 m2
Fjölbýlishús
413
916 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 404.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
93,8 m2
Fjölbýlishús
413
948 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 203.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
70,9 m2
Fjölbýlishús
211
958 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin