Skráð 20. mars 2023
Deila eign
Deila

Nonnahagi 16 Nýbygging

Nýbygging • RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
167 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.000.000 kr.
Fermetraverð
586.826 kr./m2
Fasteignamat
70.250.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2022
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2521019
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Ál/tré gluggar. Gluggar og útihurðir eru álklæddir að utan í Svörtum lit og hvítir að innan.
Þak
Þakplata er úr timbureiningum sem á er bræddur vatnsheldur asfaltdúkur, einangrað með steinull með vatnshalla og tveimur lögum af bræddum asfaltdúk
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
20,06
Upphitun
Hitaveita, Gólfhitakerfi er í húsunum. Neysluvatnskerfi er með millihitara
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Nonnahagi 16 - Nýbygging
Glæsilega 3-4ra herbergja raðhúsaíbúð með bílskúr í byggingu í Hagahverfi - stærð 167,0 m²
Íbúðin skilast fullbúin og er laus til afhendingar við kaupsamning.

Myndir eru úr sambærilegri íbúð

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús og stofu í opnu rými, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús, geymslu sem getur nýst sem svefnherbergi og bílskúr.
Sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar, dökk brúnar (Gladstone Oak) og í þvottahúsi ljós innrétting. Kvartsteinn verður á bekkjum í eldhúsi og á baðherbergi.
Hljóðdempandi dúkur í öllum loftum nema bílskúr.
Vínyl parket og flísar á gólfum og epoxy í bílskúr.

Skilalýsing
Frágangur utanhúss

Húsið skilast fullbúið að utan. Burðarvirki hússins er steinsteypt, einangrað með steinull og klætt með álklæðningu, lóðrétt standandi kasettuklæðning.
Þak, þakplata er úr timbureiningum sem á er bræddur vatnsheldur asfaltdúkur, einangrað með steinull með vatnshalla og tveimur lögum af bræddum asfaltdúk.
Gluggar og útihurðir. Ál/tré glugga- og hurðakerfi í húsinu er frá Idealcombi í Danmörku. Gluggar eru hefðbundnir ál/trégluggar með tvöföldu einangrunargleri. Gluggar eru settir í eftirá. Gluggar og útihurðir eru álklæddir að utan í Svörtum lit og hvítir að innan.
Verönd er steypt með niðurfalli, útiljósum og rafmagnstenglum. Burðarvirki skjólveggja er steinsteypt. Skjólveggir verða múraðir og málaðir. Gert er ráð fyrir að kaupendur geti sett heitan pott á verönd (það verður ídráttarrör fyrir vatnslagnir, rafmagn, niðurfall).
Lóð verður þökulögð
Bílskúr, tvö steypt bílastæði eru fyrir framan hverja íbúð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla inní bílskúr.
Frágangur innanhúss
Íbúðunum verður skilað með handslökkvitæki, reykskynjurum og lyfjaskáp.
Gólfin eru steypt með ísteyptri hitalögn. Vínil frá Target verður á alrýmum og flísar á baðherbergi og í þvottahús. Í bílskúr verður Epoxy á gólfum frá Mallland
Veggir. Innveggir úr steinsteypu þar sem burður fyrir þakið er. Gipsveggir eru inná milli og eru þeir einfalt gips + spónaplata . Veggir eru málaðir í ljósum lit.
Loft eru niðurtekin. Öll loft eru klædd með hljóðdempandi clipso dúk nema í bílskúr, þar er gips í loftum.
Innihurðir eru yfirfelldar, hvítsprautaðar með hefðbundnum hurðarkörmum. Hurðar eru læsanlegar og hurðarhúnar er úr Svört mötu áli eða sambærilegu.
Eldhús, Innrétting er plastlögð dökk brún (Gladstone Oak), sérsmíðuð af HeiðGuðByggir ehf. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu. Helluborð er span. Eldhúsinnréttingin er með mjúklokunarbúnaði og borðplötur eru úr ljósum kvartssteini.  
Baðherbergi, Gólf eru flísalögð og veggir eru flísalagðir í kringum sturturými, aðrir veggir eru málaðir. Innrétting er plastlögð dökk brún (Gladstone Oak), sérsmíðuð af HeiðGuðByggir ehf. Borðplata er úr ljósum kvartsteini. Blöndunar- og sturtutæki eru af viðurkenndri gerð, stállituð. Salerni eru vegghengd og með innbyggðum vatnskassa. Sturtugólf er einhalla með glervegg. Lýsing er í lofti.
Þvottaherbergi, Gólf eru flísalögð. Innrétting ljós plastlögð er sérsmíðuð af HeiðGuðByggir ehf og með skolvask. Borðplata er grá plastlögð. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Lýsing er í lofti. 
Hreinlætis- og blöndunartæki eru frá Tengi, öll af viðurkenndri gerð.
Svefnherbergi, Vel skipulagðir fataskápar eru í svefnherbergjum sbr. innréttingateikningar. Fataskápar eru plastlagðir dökk brúnir (Gladstone Oak), smíðaðir af HeiðGuðByggir ehf. og með mjúklokunarbúnaði. 
Forstofa, skápar plastlagðir dökk brúnir (Gladstone Oak), verður í forstofu og við hlið hans verður spegill og borð með skúffum.
Geymsla er parketlögð og innréttuð með dökk brúnum plastlögðum fataskáp (Gladstone Oak), og getur því nýst sem svefnherbergi.
Rafkerfi. Rofar og tenglar (fyrir rafmagn, tölvu/síma og loftnet) eru settir upp í samræmi við raflagnateikningar. Lýsing er við innganga og dyrabjalla og póstlúga eru staðsett við aðalinngang.
Ljósleiðari. Inntak fyrir ljósleiðara verður í húsinu en eftir verður að tengja og ganga frá endabúnaði þjónustuveitu (Míla eða Tengir) sem kaupandi gengur sjálfur frá. 
Ljós. Íbúðunum er skilað með innfelldri lýsingu frá Rafkaup eða sambærilegum aðila. Ljós eru dimmanleg.
Loftræsti- hita- og neyslukerfi. Gólfhitakerfi er í húsunum. Neysluvatnskerfi er með millihitara. (Með því að hita upp kalt vatn með hitaveituvatni má halda kísil og öðrum steinefnum í lágmarki).
Bílastæði, stétt og verönd eru með snjóbræðslu sem er lokað kerfi með mögurleika á innspítingu.
Vélrænt loftskiptikerfi sér um að hita upp ferskt loft með útkastslofti. Rekstrakostnaður hitunar gæti lækkað og einnig minnkar ryk innandyra verulega með tilkomu þessa kerfis og heilnæmi andrúmslofts eykst. Útsog er tekið úr öllum rýmum hússins. Innloftsstútar eru í alrými, herbergi og á baði, útsog er í blautrýmum, baði, þvottahús, stofu.
Sorptunnuskýli með hurðum fyrir tvær tunnur fylgir hverri íbúð.

Allt efni og teiknaðar þrívíddarmyndir eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).

Byggingarverktaki: HeiðGuðByggir ehf

Eignin er í einkasölu
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2022
37 m2
Fasteignanúmer
2521019
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
08
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kotárgerði 21
Skoða eignina Kotárgerði 21
Kotárgerði 21
600 Akureyri
190.1 m2
Einbýlishús
514
500 þ.kr./m2
95.000.000 kr.
Skoða eignina Urðargil 30
Bílskúr
 20. mars kl 16:15-17:00
Skoða eignina Urðargil 30
Urðargil 30
603 Akureyri
169.3 m2
Parhús
625
561 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Bakkahlíð 15
Bílskúr
Skoða eignina Bakkahlíð 15
Bakkahlíð 15
603 Akureyri
211.3 m2
Einbýlishús
514
463 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache