Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Jaðarstún 11
Glæsileg fimm herbergja parhúsaíbúð á einni hæð ásamt sambyggðum bílskúr á eftirsóttum stað í Naustahverfi í næsta nágrenni við golfvöllinn á Akureyri. Heitur pottur vestan við hús og stór sambyggður bílskúr. Eignin er samtals 179,8 fm. þar af er bílskúr 43 fm..
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr.
Forstofa er með flísar á gólfi og fataskáp ásamt opnu fatahengi.
Svefnherbergi eru fjögur, tvö við forstofu og tvö á svefnherbergisgangi. Þrjú þeirra eru þau með harðparket á gólfi og fataskápum, eitt með flísar og lausum fataskáp sem fylgir.
Hjónasvíta er glæsileg með góðu skápaplássi og baðherbergi sem er lokað af með rennihurð. Þar er góð innrétting í kringum vask, upphengt salerni, sturta afmörkuð með gleri og handklæðaofn. Þaðan er útgengt út á verönd til vesturs með heitum potti.
Eldhús er glæsilegt með góðri hvítri innréttingu á vegg og þar er einnig eyja og opið við stofu. Vaskur, innbyggð uppþvottavél og helluborð er í eyju auk skápapláss en ísskápur, tækjaskápur og mikið skápapláss í innréttingu á vegg auk bakaraofns í vinnuhæð.
Stofa er björt með aukinni lofthæð og flísum á gólfi eins og í eldhúsi. Stofa er afar björt enda einnig aukin hæð á gluggum. Útgengt er um tvennar dyr úr stofu á verönd.
Aðal baðherbergi er með flísar á gólfi og á veggjum í kringum sturtu sem er aðskilin með gleri. Innbyggð blöndunartæki og sturtuhaus auk handklæðaofns. Góð innrétting er í kringum vask, baðkar við hlið þess og upphengt salerni.
Þvottahús er milli íbúðarhluta og bílskúrs. Þar eru flísar á gólfi, vaskur og vegleg innrétting í kringum þvottavél og þurrkara.
Geymsla og geymsluloft er innst í bílskúr, afmarkað með léttum millivegg.
Bílskúr er með góðri lofhæð, varanlegt gólfefni frá Malland, inngönguhurð, rafdrifinni bílskúrshurð og mjög góðri lýsingu. Þar er einnig búið að setja upp létta milliveggi.
Annað:
-Aukin lofthæð er í íbúðinni og innfelld lýsing.
-Stærri gluggar í alrými
-Granít borðplötur á eyju og á baðherbergjum
-Innbyggt útvarp á nokkrum stöðum, m.a. baðherbergi og stofu
-Gólfhiti
-Ljósleiðari tengdur
-Gólf í bílskúr virkilega vel með farið, aldrei farið bíll inn á það
-Hiti í steyptum stéttum fyrir framan hús og í bílaplani
-Nýleg hellulögn og jarðvegsskipti á lóð norðan húss
-Fjögur bílastæði innan lóðar, tvö upphituð og tvö hellulögð
-Steinteppi á verönd og steyptir skjólveggir
-Stór heitur pottur
-Steypt sorpstunnuskýli
-Glæsilegt útsýni til vesturs að Hlíðarfjalli og Súlum
-Mjög góð staðsetning, stutt í leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955