Fasteignaleitin
Opið hús:06. maí kl 18:00-18:30
Skráð 30. sept. 2021

Nýbýlavegur 66

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
89.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
778.830 kr./m2
Fasteignamat
55.750.000 kr.
Brunabótamat
42.620.000 kr.
Mynd af Andri Hrafn Agnarsson
Andri Hrafn Agnarsson
Löggiltur Fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064524
Landnúmer
115705
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
22,8
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Eigandi hefur látið aðila mæla upp stærð eignarinnar og hefur komið í ljós að eignin er rúmlega 16 fm stærri en skráð stærð er. Hægt er að hugsanlega að fara í uppfærslu á eignaskiptayfirlýsingu og fá skráningu breytt, kjósi nýr eigandi það, byggt á umræddum gögnum. Stækkunin er skráð á söluyfiirliti þessu undir liðnum óskráðir fermetrar, hægt er að fá nýju mæligögnin samhliða öðrum gögnum um eignina hjá fasteignasala. Einnig hefur herbergjaskiptan verið breytt frá upphaflegu plani, búið að bæta við öðru svefnherbergi á kostnað annarra rýma í íbúðinni.
Hrannar Jónsson og Andri Hrafn Agnarsson, löggiltir fasteignasalar og Domusnova fasteignasala, kynna:

Bjarta og rúmgóða íbúð á miðhæð með sérinngangi, suðursvölum, stúdíóherbergi í kjallara ásamt bílskúr.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is

Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta síðustu árin.

Eigandi hefur látið þar til bæra aðila mæla upp stærð eignarinnar og hefur komið í ljós að eignin er rúmlega 16 fm stærri en skráð og birt stærð er. Hægt er hugsanlega að fara í uppfærslu á eignaskiptayfirlýsingu og fá skráningu breytt, kjósi nýr eigandi það, byggt á umræddum gögnum.

Stækkunin er skráð á söluyfirliti þessu undir liðnum óskráðir fermetrar, hægt er að fá nýju mæligögnin samhliða öðrum gögnum um eignina hjá fasteignasala.

Nánari lýsing:
Forstofa - komi er inn í forstofu með fatahengi.
Baðherbergi - með flísum á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtu, hirslur með vaski og wc.
Svefnherbergi - eru tvö, annað rúmgott með góðum fataskáp og hitt minna ekki með skáp, parket á gólfum.
Eldhús - er með L innréttingu, bakaraofni, helluborði og viftu, tengi fyrir uppþvottavél og plássi fyrir einfaldan ísskáp.
Stofa/borðstofa - eru opin við eldhúsið, útgengt úr stofu á suðursvalir, parket á gólfi alrýmis.
Geymsla/stúdíóherbergi - er á neðri hæð undir siganum og er aðgengi að sameiginlegu klósetti á sameign.
Þvottaherbergi - er einnig í kjallara með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr - er um 18,4 fm að stærð (skv. nýrri mælingu), hiti ásamt heitu og köldu vatni og er einkabílastæði framan við bílskúrinn.

Varðandi húsfélagsmál:
Nýlega var stofnað húsfélag í húsinu og er innheimt þar eingöngu í sjóð sem hugsaður er til framkvæmda í framtíðinni.
Enginn rekstur er hjá húsfélagi né ekkert greitt rekstrarlega varðandi sameign.
Húsið var múrviðgert og málað ásamt því að þak var yfirfarið, metið í lagi og málað 2023.

Eignin er vel staðsett í Kópavogi og stutt í alla helstu þjónustu ásamt fallegu útivistasvæði í Fossvoginum.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/11/202132.750.000 kr.42.500.000 kr.73.6 m2577.445 kr.
27/12/201316.000.000 kr.20.700.000 kr.73.6 m2281.250 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1969
16.2 m2
Fasteignanúmer
2064524
Byggingarefni
Steypa
Byggt 1969
19.5 m2
Fasteignanúmer
2064524
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.920.000 kr.

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 10 íb210
Opið hús:06. maí kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb210
210 Garðabær
64.8 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Litla Berg 0
Bílskúr
Skoða eignina Litla Berg 0
Litla Berg 0
320 Reykholt í Borgarfirði
198.1 m2
Einbýlishús
514
348 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 11
Bílastæði
Skoða eignina Sóleyjarimi 11
Sóleyjarimi 11
112 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
312
838 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisbraut 4
Bílastæði
Skoða eignina Skyggnisbraut 4
Skyggnisbraut 4
113 Reykjavík
89.6 m2
Fjölbýlishús
312
814 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin