Fasteignaleitin
Skráð 24. mars 2024
Deila eign
Deila

Vallakór 6A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
127.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
743.730 kr./m2
Fasteignamat
76.700.000 kr.
Brunabótamat
78.310.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2018
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2354710
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
7
Hæðir í húsi
10
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunlegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
21,1 fm suð-vestur svalir
Lóð
2,12
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt yfirlýsingu húsfélagsins í Vallakór 6A og dags. 02.1.2024 hefur verið gert samkomulag við byggingaraðila/ábyrgðaraðila um úrbætur vegna athugasemda sem húsfélagið hefur gert við frágang. Sjá nánar meðfylgjandi yfirlýsingu húsfélags, athugasemdarlista sem og samkomulag um úrbætur á Vallakór 6 AB. Undir samkomulagið undirritar seljandi hússins (LFC inverst ehf.), bygggingaraðili hússins (Flotgólf ehf.) sem og byggingarstjór hússins. 
Gallar
Sjá fundargerðir húsfélagsins á árunum 2022 og 2023, yfirlýsingu húsfélags dags. 2.1.2024 sem og athugasemdalista húsfélagsins. Búið er að lagfæra einhver atriða á athugasemdarlista.
"Efsta hæð - Endaíbúð - Glæsilegt útsýni - Tvö stæði í bílageymslu - Íbúðin er laus"

Valhöll fasteignasala kynnir nýlega 4ra herbergja íbúð á 7.hæð ásamt tveimur stæðum í bílageymslu í Vallakór 6A í Kópavogi. Um er að ræða endaíbúð á efstu hæð í þessum hluta hússins með 21,1 fm suð-vestur svölum og glæsilegu útsýni. Örstutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla, verslun, strætó, sundlaug, sportbar og falleg útivistarsvæði.

Nánari lýsing:

Um er að ræða íbúð 701 á 7. hæð hússins (efsta hæð í þessum hluta hússins). Íbúðin er skráð 127,6 fm að stærð og þar af er geymslan 6,8 fm. Íbúðinni fylgja stæði í bílageymslu merkt B24 og B25. 

Íbúðin skiptist í rúmgott anddyri með fataskáp, hjónaherbergi með opnu fataherbergi (18,3 fm á stærð), tvö barnaherbergi (bæði 9,3 fm á stærð) með fataskápum, baðherbergi með sturtu, innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og stofu og eldhús í rúmgóðu alrými. Útgengi er á stórar svalir úr stofu, en mikið útsýni er af svölum og úr stofu. 

Þetta er góð íbúð í vinsælu hverfi sem vert er að skoða.

Húsið:
Húsið skiptist í tvær byggingar, Vallakór 6a og 6b með tveimur lyftuhúsum, tvær lyftur í öðru húsinu en ein í hinu. Stigar eru í báðum lyftuhúsum og er aðgengi þess vegna gott. Með öllum íbúðunum fylgir sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu. Allar íbúðirnar eru með rúmgóðum svölum, en gott rými er á svölunum fyrir grill og garðhúsgögn.  Íbúðir á jarðhæð eru með sérafnotarétt á lóð. Mikið útsýni er einkennandi fyrir allt húsið. 

Þjónusta:
Eignin er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi þar sem örstutt er í alla þjónustu. Má þar nefna leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, sportbar, Kórinn íþróttamiðstöð, Salalaug, hesthúsahverfi, líkamsrækt, golfvöll GKG, og útivistarsvæði í Heiðmörk og í kringum Elliða- og Vifilstaðavatn.

Upplýsingar veitir:
Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða í tölvupósti á netfangið oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/01/202482.800.000 kr.90.900.000 kr.127.6 m2712.382 kr.
30/03/202376.700.000 kr.85.900.000 kr.127.6 m2673.197 kr.
09/01/202376.700.000 kr.90.000.000 kr.127.6 m2705.329 kr.
03/09/202155.000.000 kr.65.150.000 kr.127.6 m2510.579 kr.
19/06/201951.400.000 kr.59.900.000 kr.127.6 m2469.435 kr.
21/02/20173.810.000 kr.170.000.000 kr.370.8 m2458.468 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023
Byggt 2018
Fasteignanúmer
2354710
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
4
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.480.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2018
Fasteignanúmer
2354710
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.480.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grandahvarf 4
Skoða eignina Grandahvarf 4
Grandahvarf 4
203 Kópavogur
124.9 m2
Fjölbýlishús
312
760 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Boðaþing 3
3D Sýn
Bílastæði
55 ára og eldri
Skoða eignina Boðaþing 3
Boðaþing 3
203 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
312
717 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Bæjarlind 7
Skoða eignina Bæjarlind 7
Bæjarlind 7
201 Kópavogur
122.7 m2
Fjölbýlishús
312
773 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 4 - 304
Bílastæði
Hafnarbraut 4 - 304
200 Kópavogur
116.5 m2
Fjölbýlishús
413
850 þ.kr./m2
98.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache