Fasteignaleitin
Skráð 3. maí 2024
Deila eign
Deila

Ferjuholt 2

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-806
Verð
4.500.000 kr.
Fasteignamat
2.380.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Fasteignanúmer
2346153
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Matsstig
0 - Úthlutað
101 Reykjavík Fasteignasala kynnir Ferjuholt 2: Fallega vel staðsetta 6709,5 fm eignarlóð. Holtslóð er skipulögð sumarhúsabyggð úr landi Neðradals í Biskupstungum við allar helstu perlur Suðurlands.

Mjög gott útsýni að Bjarnarfelli og góðar gönguleiðir um ósnortna náttúru. Stór hluti lóðar er þakin kjarri og er svæðið þekkt fyrir veðursæld. Lóð er í nágrenni við margar af helstu náttúruperlum Suðurlands og stutt er inn á hálendi. Afþreying í nágrenni er afar fjölbreytt, flúðasiglingar, golfvellir ofl. í næsta nágrenni. Ferjuholt 2 er einungis í u.þ.b. þriggja km fjarlægð frá Geysi í Haukadal.

Samkvæmt deiliskipulagstillögu má byggja allt að þrjú hús á lóð. Samanlagt byggingarmagn húsa má vera 250fm, þar af má gesthús vera 40fm og geymsla eða smáhýsi 20fm. Búið er að leggja rafmagn, vatn og veg að lóðarmörkum. 

Kalt vatn liggur að lóðinni, fráveita sömuleiðis og rafmagn. Sameiginleg rotþró er á svæði.

Góð eignarlóð á eftirsóttu svæði í nágrenni Geysis og Gullfoss.

Allar upplýsingar veitir Björg Kristín Sigþórsdóttir, bjorgkristin@101.is gsm: 771 5501 eða Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. kristin@101.is gsm: 8208101. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900,- með vsk

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tungubraut 11
Skoða eignina Tungubraut 11
Tungubraut 11
805 Selfoss
Jörð/Lóð
4.700.000 kr.
Skoða eignina Tungubraut 13
Skoða eignina Tungubraut 13
Tungubraut 13
805 Selfoss
Jörð/Lóð
4.700.000 kr.
Skoða eignina Höfðavegur 17
Skoða eignina Höfðavegur 17
Höfðavegur 17
851 Hella
Jörð/Lóð
4.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache