Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Fagrihjalli 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
172.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
694.268 kr./m2
Fasteignamat
116.300.000 kr.
Brunabótamat
70.750.000 kr.
Mynd af Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Eignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2060281
Landnúmer
114291
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd og suðursvalir
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Fallegt og vel staðsett sérbýli á tveimur hæðum með góðum bílskúr í suðurhlíðum Kópavogs.

Eignin er tóm, fasteignasali með lykla og afhending á eigninni getur verið við kaupsamning.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Fasteignamat 2027 er 118.550.000 kr.

* Íbúðin skiptist í aðalhæð sem er 89,6 fm, neðri hæð sem er 56,1 fm og bílskúr sem er 27 fm.
* Birt stærð eignar er því alls 172,7 fm alls.
* Einnig mögulegt að kaupa aukaíbúð á jarðhæð á sér fastanúmeri , nánari upplýsingar hjá faseignasala.
* Rúmgóður og gróinn garður sem snýr til suðurs er í sameign beggja eigna í húsinu.
* Stórar svalir á aðalíbúð með fallegu útsýni til suðurs. 
* Rúmgott bílastæði við húsið.

Nánari lýsing :
íbúðin er á 2 hæðum, 172,7fm, mjög hátt til lofts í stofu og borðstofu.
Eignin er á pöllum, bæði efri og neðri hæð er á pöllum og góður stigi er milli hæða.
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa samliggjandi í opnu rými með útgengi á stórar suðursvalir.  Fallegt útsýni er til vesturs og suðurs. Parket á gólfi.
Eldhús mjög rúmgott og með góðum innréttingum og tækjum, flísar á gólfi og borðkrók.
Gestasnyrting flísalögð og með glugga.
Eitt svefnherbergi er á efri hæð með parket á gólfi.
Svefnherbergin á neðri hæð eru tvö, rúmgóð með skápum og parket á gólfum.
Baðherbergið er á neðri hæð, flísalagt á gólfi og veggjum, með snyrtilegri innréttingu með vask, salerni, baðkar og stakstæð sturta.
Þvottahús er einnig á neðri hæð, rúmgott og flísalagt, gluggi með opnanlegu fagi.
Sameiginlegur garður í suður.   

Bílskúr 27fm með heitu/köldu vatni, rafmagni, niðurfalli, sér inngönguhurð, stórum glugga með góðu útsýni móti suðri/vestri og ekki innangengur frá húsi. Í dag er búið að klæða bílskúrshurð af innanfrá og parketleggja gólf, var nýtt sem svefnherbergi hjá leigjendum sem voru. Góð geymsla er upp við loft á millilofti.

Vel staðsett eign á vinsælum stað í Kópavogi með stutt í alla þjónustu, skóla og íþróttastarf ásamt miklum útivistarsvæðum með góðum göngu- og hjólaleiðum.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/03/201538.250.000 kr.44.984.000 kr.172.7 m2260.474 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bríetartún 14
Opið hús:13. júní kl 15:10-15:40
Skoða eignina Bríetartún 14
Bríetartún 14
105 Reykjavík
81.8 m2
Fjölbýlishús
311
830 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 3
Bílskúr
Opið hús:16. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sóltún 3
Sóltún 3
230 Reykjanesbær
137.1 m2
Fjölbýlishús
311
495 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Skektuvogur 2
Bílastæði
Skoða eignina Skektuvogur 2
Skektuvogur 2
104 Reykjavík
132.4 m2
Fjölbýlishús
413
800 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Bæjarlind 5
Bílastæði
Skoða eignina Bæjarlind 5
Bæjarlind 5
201 Kópavogur
78.4 m2
Fjölbýlishús
211
917 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin