Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 5. hæð með fallegu útsýni í eftirsóttu og góðu lyftuhúsi fyrir eldri borgara ( VR blokkin fyrir 63 ára og eldri ) að Hvassaleiti 58 í Reykjavík.
Samkvæmt HMS er eignin 77,3 fermetrar að stærð og skiptist þannig að íbúðin er 65,4 fermetrar, sérgeymlan á hæð er 4,0 fermetrar og svo er sérgeymsla í kjallara sem er 7,9 fermetrar. Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni með tækjum.
Á jarðhæð hússins er félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þar er boðið uppá ýmsa þjónustu t.d. heitan mat í hádeginu og miðdegiskaffi í stórum og björtum matsal. Á hæðinni er vinnustofa, hárgreiðslu,- og fótaaðgerðarstofa. Í félagsmiðstöðinnu er boðið uppá fjölbreytt félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Auk þess er æfingasalur, búningsklefar, snyrting og sturtur á hæðinni.
Nánari lýsing:
Innngangur, sameiginlegur með lyftu, flísar á andyri, teppalagt stigahús og gangar.
Forstofa, parketlögð með fataskáp.
Eldhús, parketlagt, opið við stofu með hvítri innréttingu, með efri og neðri skápum, flísalagt á milli, uppþvottavél og góðri borðaðstöðu.
Stofa / borðstofa, parketlögð og björt með útgengi út á rúmgóðar svalir með útsýni og snúa út í garð.
Svefnherbergi, kork flísar á gólfi og með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, inngeng flísalögð sturta með sturtugleri, falleg innrétting með skápum og upphengt wc.
Geymsla, á hæð, 4,0 fermertrar að stærð, máluð gólf og hillur.
Þvottaherbergi, sameiginlegt á hæð, flísalagt gólf og sameiginlegar vélar.
Í kjallara hússins er sér geymsla, 7,9 fermetrar að stærð, með máluðu gólfi og hillum.
Húsið sem var byggt 1985 lítur vel út og sameign er öll mjög snyrtileg. Verið er að múrgera og mála ásamt því að skipt verður um gler og glugga sem við á og er það greitt af seljanda.
Lóðin er fullfrágengin og falleg með góðri aðkomu með tyrfðum flötum, trjábeðum, göngustígum, og bílastæðum.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð miðsvæðis í borginni og stutt er í alla þjónustu, verslanir ásamt göngufæri í Kringluna.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.