RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna: Bjarkarheiði 39, fnr. 225-9244 - Fasteignamat ársins 2023 er kr. 73.050.000Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá 155,5 fm raðhús og er skráð byggingarefni steinsteypa (forsteyptar einingar). Húsið er byggt árið 2002 og er með innbyggðum bílskúr. Íbúðarhluti 122,3 fm, bílskúr er 33 fm. Húsið er innst í fjögurra húsa lengju. Húsið samanstendur af forstofu, alrými með stofu, sólskála og eldhúsi, þremur svefnherbergjum, baðherbergi og bílskúr sem er með geymslu inn af. AFHENDINGARTÍMI HÚSSINS ER SAMKOMULAG.3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Aðkoma: Hellulagt bílaplan fyrir framan bílskúr og útidyrnar að húsinu með hitalögn undir. Bílalplanið er sérstaklega stórt þar sem um endaraðhús er að ræða.
Forstofa: Flísar á gólfi. Gengið er inn í bílskúr úr forstofu.
Eldhús: Flísar á gólfi. Innrétting með góðu geymsluplássi. Granít í borðplötum. Nýr Electrolux bakaraofn og Miele örbylgjuofn með grilli. Tvær ceramic hellur og tvær gashellur með háfi yfir. Gaskútur er fyrir utan húsið.
Stofa/borðstofa: Flísar á gólfi. Gengið er út úr stofu á sólpall með skjólveggjum og heitum potti.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi. Upphengt salerni. Grá innrétting með handlaug og spegli fyrir ofan. Einng eru eikarskápar í baðherbergi. Þvottavél og þurrkari eru í baðherbergi en er aflokað með hengi.
Svefnherbergi: Eru þrjú talsins og er parket á gólfum á þeim öllum. Fataskápur er í hjónaherbergi.
Bílskúr: Flísar á gólfi. Gott milliloft með góðu geymslurými. Innkeyrsluhurð. Hægt er að vera með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í bílskúrnum.
Lóð: Lóðin er frágengin og er með tyrfðum bletti, hellulögn og timburpalli með skjólveggjum og heitum potti.
Gott hús á vinsælum stað í Hveragerði. Lagnakjallari er undir húsinu. Sólbekkir í húsinu eru úr granít. Lokað kerfi er á miðstöð. Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða daddi@remax.is Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.