Fasteignaleitin
Skráð 18. júní 2026

Lækjarvað 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
124.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
880.609 kr./m2
Brunabótamat
60.900.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
22919188
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða virkilega fallega 4ra herbergja neðri sérhæð með sérinngangi í þessu vinsæla og barngóða hverfi í Norðlingaholtinu í Reykjavík. Nýlega stækkaður og uppgerður pallur úr viðhaldsfríu GOVA plastefni. Eignin var endurnýjuð vorið 2022, gólfefni endurnýjuð, eldhúsi var breytt ásamt geymslunni, smíðuð var þvottahúseining fyrir þvottavél og þurrkara, ofn í forstofu hefur verið endurnýjaður. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, tvær geymslur, eldhús, stofu og borðstofu. Frá stofu er unnt að ganga út pall sem snýr í suður og þaðan út í garð. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði. Virkilega góð staðsetning, innst í botnlanga. Skv. HMS er eignin skráð 124,8 fm og skiptist þannig að íbúðin sjálf er 117,6 fm ásamt 7,2 fm geymslu. Gólfhiti á baðherbergi. 

Eignaskiptasamningur: Eignin er 4ra herbergja íbúð á 1. hæð hússins. Íbúðin samanstendur af stofu, eldhúsi, þvottaherbergi, baðherbergi, hjónaherbergi, tveimur barnaherbergjum og anddyri. Auk þessa tilheyrir íbúðinni geymsla merkt: 01-03. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra sem eru undirgangur 01-07 og þakrými 03-01.Eigninni tilheyrir helmingshlutdeild í sorpgeymslu, sem stendur á lóðinni norðan matshlutans. Eigninni tilheyrir sérafnotafletir sem tilgreindir eru á aðaluppdráttum. 

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp. Frá forstofu tekur við gangur. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, stór fataskápur í hjónaherbergi. Geymsla innan íbúðar með hillum. Flísalagt þvottahús með innréttingu. Baðherbergi er flísalagt í hólf gólf, góð innrétting, sér sturta og baðkar, handklæðaofn, gólfhiti á baðherbergi. Af gangi er komið inn í rúmgott opið rými sem skiptist í eldhús, stofu og borðstofu. Í eldhúsi er falleg hvít innrétting með granít borðplötu, spanhelluborði, blástursofni og háfi. Stofan og borðstofan eru með gólfsíðum gluggum til þriggja átta sem gefur mög góða birtu inn í rýmið. Úr stofu er gengið út á pall með skjólveggjum í suðvesturátt og afgirtan sér garð. Eigninni fylgir einnig sér geymsla við enda bílskúrs efri hæðar. Gólfefni íbúðar: vínylparket og flísar. 

Virkilega falleg eign á mjög vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, göngufæri frá skóla og leikskóla.  

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hesthamrar 5
Bílskúr
Skoða eignina Hesthamrar 5
Hesthamrar 5
112 Reykjavík
198 m2
Hæð
513
606 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 63 - 2 bílastæði
Laugavegur 63 - 2 bílastæði
101 Reykjavík
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
706 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Opið hús:02. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19,íb. 602
Bílastæði
Hringhamar 19,íb. 602
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin