Eignamiðlun kynnir:
Mikið endurnýjað einbýlishús við Bæjarholt í Laugarási. Húsið er 208 fm og stendur á stórri útsýnislóð á fallegum stað, 1650 fm.Laugarás er notalegt sveitaþorp í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Vaxandi ferðaþjónusta er á svæðinu og nýtt og glæsilegt baðlón, Laugarás Lagoon.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað. M.a. gólfefni, eldhús og baðherbergi. Nýr viðarpallur er við húsið með heitum potti, útisturtu og geymslu. Sauna er á lóðinni og stendur þannig að mikið útsýni yfir Laugarás.Nánari lýsing:Húsið skiptist í anddyri, þvottahús, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofu, borðstofu og eldhús.
Anddyri: Flísar eru á gólfi um fataskápur.
Þvottahús: Vínilparket er á gólfi. Innrétting með þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Útgangur er í þvottahúsi.
Svefnherbergi: Fimm rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar, sturta og góð innrétting.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Sturta og innrétting.
Sofa og borðstofa: Rúmgóð stofa og borðstofa sem er tengd við eldhús. Parket á gólfi og útgangur út á verönd.
Eldhús: Er rúmgott með góðri innréttingu, steinn á borðum og parket á gólfi.
Rúmgóð lóð er við húsið og stendur húsið innst í botnlanga og hefur mikið opið svæði sem gefur húsinu mikið rými og frið.
Nánair upplýsingar veitir Guðlaugur Ingi Guðlaugssoin í síma 864-5464 eða með tölvupósti á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook