ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu 3.herbergja einbýli á tveimur hæðum með sólpalli við Brekkustíg 2, 245 Sandgerði, birt stærð 109.8 fm.
Um er að ræða skemmtilegt einbýlishús á rólegum stað í Sandgerði.
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús með salerni og rúmgóða stofu.Nánari upplýsingar veita
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 8669954, tölvupóstur haukur@allt.is.Nánari lýsing eignar:
Neðri hæð:Anddyri flísalagt, baðherbergi með sturtuklefa, vegghengdu salerni. flísar á gólfum og veggjum.
Innan af baðherbergi er geymsla/herbergi með harðparketi.
Tvö svefnherbergi á hæðinni með eldra parketi á góflum.
Þvottahús með salerni og vaski, flísalagt gólf.
Efri hæð:Stórt eldhús, flísar á gólfi og veggjum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Rúmgóð stofa með plastparketi.
Anddyri flísalagt.
Útitröppur uppá efri hæð flísalagðar.
Sólpallur við inngang á efri hæð.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.