Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2024
Deila eign
Deila

Bringur 11

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
54.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
28.900.000 kr.
Fermetraverð
527.372 kr./m2
Fasteignamat
23.250.000 kr.
Brunabótamat
22.700.000 kr.
Mynd af Loftur Erlingsson
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1983
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2205362
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
3 fasa
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Endurnýjað fyrir ca 15 árum
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Góður pallur
Lóð
100
Upphitun
Rafmagnsofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Bringur 11, 45,4fm sumarhús auk 9,4fm gestahúss, samtals 54,8fm, á 5003fm EIGNARLÓÐ í landi Drumboddsstaða í Bláskógabyggð. 
Mjög gróin og skjólsæl lóð og fallegt útsýni til Geysis, Langjökuls og Jarlhetta, svæðið lokað með öryggishliði. Sannkallaður ævintýraheimur. 

Húsið er timburhús, klætt að utan með liggjandi timburklæðningu, hurðir og gluggar úr tré og járn á þaki, þriggja fasa rafmagn.  Pallar umhverfis húsið að mestu og gott geymslupláss undir honum en húsið stendur á steyptum súlum. 
Inni er forstofa með hengi fyrir yfirhafnir og baðherbergi við hlið hennar.  Sturtuaðstaða þar af einfaldri gerð, vaskur á skáp og klósett.  Þá björt stofa með dyrum út á pall, kamínu, og borðstofuskoti með ísskáp og skápum fyrir leirtau. Nett eldhús með gas eldavél og ágætu skápaplássi og útsýni til Langjökuls og Jarlhetta úr gluggum þess.  Svefnherbergin eru tvö, koja í því minna en tvöfalt rúmstæði í hinu.  Eitthvað af húsgögnum og húsbúnaði fylgir við sölu.
Bústaðurinn er allur panelklæddur að innan, hvíttaður í herbergjum og ágætt harðparket á gólfum nema forstofu og baðherbergis, þar eru málaðar spónaplötur. 
Skammt frá húsinu er frístandandi gestahús, 9,4fm að stærð, panelklætt að innan og ágætt pláss fyrir stórt rúm þar. Þá er einnig lítið bjálkahús sem notað er sem verkfæraskúr. 
Lóðin er sem fyrr segir eignalóð , 5003fm að stærð, ákaflega skjólsæl, töluvert af trjágróðri, bláberja- og hrútaberjalyngi, og lítill heimatilbúinn lækur með gosbrunni bak við húsið. 
Virkilega áhugaverð eign á fallegum stað. 

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/07/202319.650.000 kr.24.500.000 kr.54.8 m2447.080 kr.
29/11/20087.872.000 kr.6.493.000 kr.54.8 m2118.485 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1990
9.4 m2
Fasteignanúmer
2205362
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
2.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalsgerði 3
Skoða eignina Dalsgerði 3
Dalsgerði 3
805 Selfoss
50.5 m2
Sumarhús
12
592 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Berjaholtslækur 4
Berjaholtslækur 4
805 Selfoss
48.7 m2
Sumarhús
11
616 þ.kr./m2
30.000.000 kr.
Skoða eignina Hagi Breiðavík lóð 20
Hagi Breiðavík lóð 20
851 Hella
49.8 m2
Sumarhús
312
598 þ.kr./m2
29.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin