Fasteignaleitin
Skráð 20. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Birkihlíð 41

SumarhúsVesturland/Akranes-301
74.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.000.000 kr.
Fermetraverð
991.957 kr./m2
Fasteignamat
36.700.000 kr.
Brunabótamat
47.550.000 kr.
Mynd af Hrafnkell Pálmarsson
Hrafnkell Pálmarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Þvottahús
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2504751
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur með heitum potti
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
442-M-001069/2019 - Forkaupsréttur leigusala
413-M-001898/2002 - 146 ha land tekið til timburskógræktar. Samningur við Vesturlandsskóga til 40 ára samningurinn endurskoðaður eftir 10 ára fresti. Skuldbindur hann því bæði núvrandi landeigendur og þá sem síðar kunna að öðlast réttindi yfir jörðinni.
Afar fallegt og vel hannað nýlegt 3-4 herbergja heilsárshús á góðum útsýnisstað í landi Kalastaða með glæsilegu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Hönnun hússins er einstök með blöndu af skandinavískri og suður-amerískri hönnun.

** 2-3 svefnherbrergi (3 geta sofið í stofu)
** Glæsilegt útsýni yfir Hvalfjörðinn
** Stækkunarmöguleiki, leyfi fyrir allt að 150m2 húsi á lóðinni
** Aðeins um 50mín akstur frá Reykjavík


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. FMR. er 74,6m2 og stærð lóðar er 6.452m2

Eignin skiptist í anddyri, 2 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, geymslu innan íbúðar og þvottahús/geymslu. 

Nánari lýsing
Anddyri er með fatahengi 
Svefnherbergi I er með svefnplássi fyrir fjóra með þrííbreiðu rúmi og einbreiðri efri koju. Gott geymslurými undir rúmum.
Svefnherbergi II er með tvíbreiðu rúmi. Gott geymslurými undir rúmi.
Baðherbergi er rúmgott með innréttingu, "walk-in" sturtu, vegghengdu salerni, handlaug og handklæðaofn. Flísar á gólfum.
Eldhús er með svartri innréttingu með viðarborðplötu, frístandandi vinnueyju, bakaraofn og uppþvottavél. Glæsilegt útsýni yfir Hvalfjörð út um eldhúsgluggann.
Borðstofa er samtengd eldhúsi með mikilli lofthæð og er útsýnið út um stóra gluggana stórbrotið. Setubekkir eru á tveimur veggjum borðstofunnar með geymsluhirslum.
Stofa er inn af borðstofu og eru hannaðir setubekkir á þrjá vegu og geta þrír sofið á þeim.
Leikherbergi/geymsla hefur verið útbúin fyrir ofan svefnherbergi II
Þvottahús/geymsla er fyrir aðgengileg út um borðstofuhurðina.
Steypt verönd er fyrir utan borðstofu og er það stór 8 manna heitur pottur.

Efni í innréttingum hússins hafa verið valin til þess að gefa rýminu sinn einstaka karakter. Veggir og loft eru úr spónaplötum gólf eru flotuð nema á baðherbergi sem eru flísar.

Lóðin er leigulóð með 95 ára leigusamningi og er heimld fyrir hendi að stækka húsnæðið upp í 150m2.

Hér er um einstakt tækifæri að geta upplifað friðsæld og njóta óhindraðs sjávarútsýnis innan við klukkutíma frá erli höfuðborgarinnar en samt í nálægð við alla þjónustu Akraneskaupstaðar. 
Sjón er virkilega sögu ríkari!

Nánari upplýsingar um húsið og umhverfið er að finna hér:
https://www.hvalfjordhouse.com/


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin