Fasteignaleitin
Skráð 10. okt. 2026

Laugateigur 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
75.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
789.196 kr./m2
Brunabótamat
38.450.000 kr.
Byggt 1951
Kjallari
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20192391
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

BJÖRT OG FALLEG 76 FM. 2A HERB. ÍBÚÐ Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ - 105 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu HMS - Fasteignaskrá er birt flatarmál eignarinnar 75,9 fm.

Um er að ræða 2ja herbergja kjallaraíbúð í steinsteyptu 4ra íbúða húsi byggðu árið 1951.
Gengið er inn í rúmgott forstofuhol, til vinstri er eldhúsið en til hægri er baðherbergið. Inn af forstofuholinu er rúmgóð stofan vinstra megin og svefnherbergið hægra megin sem einnig er mjög rúmgott. Sér geymsla íbúðarinnar er framan við íbúðina og sameiginlegt rúmgott þvottahús. Eignarhluti íbúðarinnar er 17,94% í húsinu.

Forstofuhol: Gott skápapláss og parket á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og eldri innrétting með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur.
Stofa: Björt og mjög rúmgóð með skemmtilegu glugga útskoti, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt með sturtuklefa. innréttingar við handlaug, handklæðaofn og gluggi.
Geymsla: Sér geymsla, skráð 3,4 fm. er í sameign framan við íbúðina.

Samkvæmt eigendum hefur húsinu verið vel við haldið; árið 2000 þakkantur steyptur upp á nýtt og borið sérstakt efni ofan á hann árið 2024, árið 2004 nýjar svalir settar á suðurhlið hússins á 1. og 2. hæð, árið 2015 aðal rafmagnstafla hússins endurnýjuð, árið 2016 var þakjárn, þakpappi og niðurföll endurnýjuð auk þess sem gluggar voru yfirfarnir, lagfærðir og málaðir og árið 2020 var húsið múrviðgert að hluta norðanverðu, útitröppur endurnýjaðar og lagðar hitalagnir í þær, stétt fyrir framan hús endurnýjuð og lagðar hitalagnir undir.

- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Nýlega var skipt um glugga og stofunni og suður glugga í svefnherberginu, einnig er búið að skipta um ofnalagnir og ofna bæði í stofu og svefnherbergi.

Um er að ræða fallega íbúð í snyrtilegu umhverfi, stór sameiginlegur garður er á baklóðinni og gróið umhverfi, í göngufjarlægð er leikvöllur, leikskóli, skóli, sundlaug og ýmis þjónusta.
Stutt í útivistarsvæðið í Laugardalnum og frábærar göngu- og hlaupaleiðir á Laugarnestanganum.


Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klettamói 6
Opið hús:01. nóv. kl 13:30-14:00
Skoða eignina Klettamói 6
Klettamói 6
815 Þorlákshöfn
71,1 m2
Fjölbýlishús
312
757 þ.kr./m2
53.800.000 kr.
Skoða eignina Klettamói 2
Opið hús:01. nóv. kl 13:30-14:00
Skoða eignina Klettamói 2
Klettamói 2
815 Þorlákshöfn
71,1 m2
Fjölbýlishús
32
757 þ.kr./m2
53.800.000 kr.
Skoða eignina Naustahlein 19
60 ára og eldri
Á einni hæð
Opið hús:01. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Naustahlein 19
Naustahlein 19
210 Garðabær
77,5 m2
Fjölbýlishús
311
992 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 17
Bílastæði
Skoða eignina Bjarkarholt 17
Bjarkarholt 17
270 Mosfellsbær
92,9 m2
Fjölbýlishús
312
899 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin