Skráð 16. jan. 2026

Fiskakvísl 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
199.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
626.693 kr./m2
Fasteignamat
112.550.000 kr.
Brunabótamat
95.350.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1983
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2043926
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að var breytt í íbúðir
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Fiskakvísl 1 Reykjavík /  Afar falleg 6-7 herbergja íbúð með tvennum svölum og rúmgóðum bílskúr.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu afar fallega og sjarmerandi 199,3 fermetra 6-7 herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) með miklu útsýni og bílskúr við Fiskakvísl 1 í Reykjavík. Íbúðin er með fjórum svefnherbergjum í dag en einfalt er að bæta við fimmta svefnherberginu í risi íbúðar. Rúmgóð og björt stofa með arinn og góðum gluggum til suðurs. Stórar svalir til suðurs inn í bakgarð hússins ásamt svölum til norðurs með miklu úrsýni til fjalla. Gott fjölskyldurými/sjónvarpsrými í risi íbúðar og þvottaherbergi innan íbúðar. Stór 33,2 fermetra bílskúr og stór 16,1 fermetra geymsla með glugga á jarðhæð. 

Húsið er byggt árið 1983 og lítur vel út að utan og ber þess merki að hafa fengið gott viðhald í gegnum árin. Þakið var endurnýjað fyrir u.þ.b. 2 árum síðan þar sem skipt var um járn, pappa og þakglugga. Þá var skipt um svalahurð og glugga á suðurhlið hússins fyrir u.þ.b. ári síðan og allt tréverk í norður, austur og vestur var málað árið 2025. Auk þess hefur verið skipt um ofna í stofu og baðherbergi. Fallega frágengin lóð er umhverfis húsið. Hellulagðrar stéttir og rúmgott bílastæði fyrir framan hús. Góð sameiginleg gestastæði út í götu.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholti í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. 

Nánari lýsing:

Aðalhæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Hol: Með parketi á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og stórum gluggum til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Fallegur arinn og útgengi á svalir.
Svalir I: Eru stórar og snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með parketi á gólfi og hvítri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. Borðkrókur, flísar á milli skápa og gluggi til norðurs með fallegu útsýni til fjalla. Bakaraofn, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél.
Þvottaherbergi: Epoxy á gólfi, vinnuborð, vaskur, skápar og tenglar fyrir þvottavél/þurrkara.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til suðurs. Útgengi á svalir I frá hjónaherbergi.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með parketi á gólfi og glugga til norðurs með fallegu útsýni. Útgengi á svalir II frá svefnherbergi.
Svalir II: Snúa til norðurs með fallegu útsýni til fjalla.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Sturta og baðkar með sturtutækjum. Innrétting við vask og gluggi til austurs.

Rishæð: 
Fjölskyldurými/sjónvarpsrými: Er rúmgott með parketi á gólfi og þakglugga til suðurs. Möguleiki væri að stúka af hluta af fjölskyldurými og bæta við fimmta svefnherberginu.
Svefnherbergi IV: Er rúmgott, með parketi á gólfi og glugga til austurs og þakglugga til suðurs. Fallegt útsýni frá herbergi.

Bílskúr: Er rúmgóður eða 33,2 fermetrar að stærð. 
Sérgeymsla: Er rúmgóð, eða 16,1 fermetrar að stærð og með glugga. Einnig hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1983
3.3 m2
Fasteignanúmer
2043926
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustabryggja 32
Bílskúr
Skoða eignina Naustabryggja 32
Naustabryggja 32
110 Reykjavík
230.4 m2
Raðhús
523
560 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Fiskakvísl 3
Bílskúr
Skoða eignina Fiskakvísl 3
Fiskakvísl 3
110 Reykjavík
171 m2
Fjölbýlishús
413
684 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarás 15
Bílskúr
Skoða eignina Skógarás 15
Skógarás 15
110 Reykjavík
213.5 m2
Fjölbýlishús
725
562 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Elliðabraut 4
Bílastæði
Skoða eignina Elliðabraut 4
Elliðabraut 4
110 Reykjavík
155.5 m2
Fjölbýlishús
524
784 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin