Skráð 24. sept. 2022
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
72.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
30.800.000 kr.
Fermetraverð
425.414 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Garður
Bílastæði
Fasteignanúmer
500020822
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Svalir og þakasvalir
Upphitun
Hiti / Kæling
Fyrirhugaðar framkvæmdir
FL
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR MEÐ STÆÐI Í BÍLAKJALLARA – GLÆSILEGT RESORT*

Vandaðar og fallegar íbúðir á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT.
Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með sér garði eða efri hæð með þakverönd. Hægt er að velja íbúðir snúa í suður eða vestur. Glæsilegur sundlaugargarður.

Santa Rosalia stöðuvatnið verður miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar verður frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu verður einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn verður glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.



ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.
Fyrstu áfangar seldust upp á nokkrum dögum. Nýr áfangi kemur í sölu á næstu dögum, en nú er hægt er að skrá sig á forsölulista til geta valið eign áður en verkefnið fer í almenna sölu. 

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing: 

Komið er inn í gott opið alrými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu alrými með útgengi út á verönd.
Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum og sérbaðherbergjum. Úr svefnherbergjum er útgengi út á verönd.
Sérstæði í bílakjallara og geymsla.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Gólfhiti á baðherbergjum.

Hægt er að fá íbúðirnar fullbúnar húsgögnum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð:
3ja herb. penthouse íbúð (Tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð frá 220.000 Evrum + kostn.  (30.800.000ISK miðað við 1 Evra = 140ISK)
3ja herb. jarðhæð með sér garði (Tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð frá 223.000 Evrum + kostn. ( 31.200.000 miðað við 1 Evra = 140 ISK)
Til afhendingar ca. árslok 2023.
Aðeins örfáar íbúðir eftir.

Hægt er að festa sér íbúð með greiðslu á 6.000 evrum.
Kaupverð greiðist í áföngum eftir framvindu verksins.
Bankaábyrgð á greiðslum fram að afhendingu.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandaðaða eign með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is


Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, verönd, golf, sundlaugargarður, 
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
500020822
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.eignir.isEignir í sölu

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
64 m2
Hæð
322
466 þ.kr./m2
29.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Spánn - Costa Blanca
71 m2
Fjölbýlishús
322
454 þ.kr./m2
32.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
73 m2
Fjölbýlishús
322
419 þ.kr./m2
30.600.000 kr.
Skoða eignina Villacosta - Stórar svalir
Villacosta - Stórar svalir
Spánn - Costa Blanca
87.1 m2
Fjölbýlishús
322
343 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache