Fasteignaleitin
Skráð 24. feb. 2025

Smiðjuvellir 10

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær-230
38 m2
Verð
19.500.000 kr.
Fermetraverð
513.158 kr./m2
Fasteignamat
10.800.000 kr.
Brunabótamat
14.200.000 kr.
Mynd af Lilja Valþórsdóttir
Lilja Valþórsdóttir
Fasteignanúmer
2524569
Landnúmer
128046
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
30
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
0
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
PRODOMO fasteignarsala kynnir geymslubil á frábærum stað í Reykjanesbæ að Smiðjuvöllum 10, alls 56m2 og þar af er óskráð milliloft 18m2.

Um er að ræða nýlegt bil þar sem búið er að setja sirka 18m2 milliloft, búið að bæta við lýsingu og epoxy er á gólfi. Stigi uppá milliloft er innst í bilinu
.

Afgirt svæði með öryggismyndavélum og rafmagnshlið væntanlegt.

Mögulegt að fá afhent fljótt.

ATH myndir að innan eru af samskonar bili.


Nánari lýsing frá byggingaraðila:
Húsið er reist úr límtré sem reist er á staðsteyptar undirstöður. Húsið er klætt að utan með fjöldaframleiddum yleiningum sem koma með innbrenndum lit. Litir eru almennt dökkgráir.
Flassningar verða í einkennandi litum fyrir hvern matshluta.
Húsin eru reist á staðsteyptum sökkli. Samanlögð heildar lóðarstærð er um 9.894 fm. 

Frágangur utanhús:

Burðarvirki:Sökklar og botnplata: Járnbent steinsteypa. Útveggir: Límtrésburðarvirki þar sem það á við. Yleiningar með steinullarkjarna. ST 105. Dökk gráar að utan og hvítar að innan
Þak/ Þakvirki: Límtrésburðarvirki þar sem það á við. Yleiningar með steinullarkjarna. ST 175, trapizuformuð þakklæðning. Dökk gráar að utan og hvítar að innan.
Útveggir: Yleiningar með steinullarkjarna. Dökk gráar að utan og hvítar að innan. Allar áfellur eru með innbrenndum lit. Hver matshluti verður aðgreindur með sérstökum kenni-lit.
Raflagnir: Lýsing utanhúss er fullfrágengin LED lýsing. Útilýsingu er stýrt með sólúri í aðaltöflu.
Lagnir: Þakniðurföll og drenlagnir i lóð. Skólpbrunnar er við öll hús þannig hægt sé að rekja mengun í frárennsli á einstaka matshluta. Öll inntök / mælagrindur fyrir hvern matshluta eru í sameiginlegum inntaksrýmum. Inntaksrýmin eru aðskilin fyrir aðaltöflu annarsvegar og heitt og kalt neysluvatn, hinsvegar.
Gluggar og útihurðir:  Gluggar og útihurðir eru úr áli. Allt gler er K-gler
Iðnaðarhurðir: 2,5m x 3,0m án mótor. Litur dökk grár.

Lagnir: Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru þau upphituð með hitaveituofnum. Niðurföll í gólfi við innkeyrsluhurðir verði hefðbundin en með möguleika að koma fyrir olíugildru í þau ef starfsemi hússins breytist á einhverjum tímapunkti. Hitaveita er sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita neysluvatnsins. Lagt er fyrir salernisaðstöðu.

Frágangur lóðar:

Lóð: Bílastæði eru fullfrágengin með malbikslögn. Steinsteypt sorptunnugerði fyrir tvo framhlaðna gáma verður komið upp innan lóðar. Veggir og gólf utan um gáma verði steinsteypt.Niðurföll með sandfangi verði bæði við sorptunnugerði sem og á akstursleiðum við geymslubil.
Stofnað hefur verið húsfélag sem sér um rekstur á sameiginlegri lóð og öryggiskerfi. Lóð er afgirt með galvaniseraðri öryggisgirðingu.
Komið verður fyrir fjarstýrðu hliði sem hindrar aðkomu óviðkomandi inná lóð.
Sett verða upp 3 stk læsanleg göngu-hlið á öryggisgirðingu. Sett hefur verið upp myndavélakerfi sem rekið er af húsfélagi í sameign allra eignahluta á svæðinu 

Allar nánari upplýsingar veitir Hákon Ó Hákonarson löggiltur fasteignasali í síma   899-1298 / 420-4030 eða hakon@prodomo.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/04/20234.080.000 kr.14.900.000 kr.38 m2392.105 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (5)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bolholt 4
Til leigu
LAUST STRAX
Skoða eignina Bolholt 4
Bolholt 4
105 Reykjavík
220 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Skoða eignina Bolholt 4
Til leigu
Skoða eignina Bolholt 4
Bolholt 4
105 Reykjavík
178.6 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Skoða eignina Dalshraun 17
Til leigu
Verslunarhúsnæði
Skoða eignina Dalshraun 17
Dalshraun 17
220 Hafnarfjörður
236.1 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Skoða eignina Skútuvogur 10C
Til leigu
Skoða eignina Skútuvogur 10C
Skútuvogur 10C
104 Reykjavík
374.9 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 118.550.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin