*** ASPARSKÓGAR 13 - 300 AKRANESI ***
PRIMA fasteignir og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: 60,9 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með suður verönd sem skiptist í: Anddyri, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, eldhús, stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi og geymsluskápur í sameign.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT
SJÁ MYNDBAND AF EIGN (VIDEO)Nánari lýsing:Forstofa: Með góðum fataskáp. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Með útgengi út á afgirta suður verönd. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Innrétting svörthvít, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð, vifta, opið að stofu. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er rúmgott með sturtu, góð innrétting með spegli fyrir ofan vask, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og opnanlegur gluggi, flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Með góðum fataskápum og harðparket á gólfi.
Geymsluskápur: Er í sameign.
Hjóla og vagnageymsla: er í sameign.
* Innréttingar eru HTH og tæki eru AEG.
* Gólfefni, innihurðir og flísar eru frá Birgisson.
* Hreinlætistæki eru frá Tengi.
* Hiti er í útitröppum milli hæða og í gangstétt fyrir framan hús. Um er um að ræða vel skipulagða 3ja herbergja vel staðsetta eign, þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu.
Fasteignamat 2025
42.450.000 kr.
Nánari upplýsingar veitir:Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 /
oliver@primafasteignir.is__________________________________________________________________________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FASTEIGNALAND fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.