Davíðshagi 8, íbúð 301 - Björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni - Stærð 91,2 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.Til sölu er falleg, björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á efstu hæð í austurenda fjölbýlishúss með lyftu á eftirsóttum stað í Hagahverfi. Íbúðin nýtur frábærrar staðsetningar með opnu útsýni, góðu aðgengi og stutt í alla helstu þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu og björtu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu á jarðhæð.
Nánari lýsing:Við inngang er snyrtileg
forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Frá forstofu er komið inn á gang með parketi og góðu skápaplássi.
Eldhús og stofa mynda rúmgott og bjart alrými þar sem stórir gluggar hleypa inn mikilli náttúrulegri birtu.
Eldhúsið er fallega innréttað með góðu skápa- og skúffuplássi, flísum á milli skápa og innbyggðri uppþvottavél. Frá
stofu er gengið út á góðar suðursvalir þar sem njóta má glæsilegs útsýnis og sólríkra stunda.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, öll með parketi á gólfum og fataskápum sem tryggja gott geymslupláss.
Baðherbergið er snyrtilegt og vel hannað með flísum á gólfi og við votrými. Þar er hvít innrétting með plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara, handklæðaskápur, upphengt salerni og rúmgóður sturtuklefi með glerveggjum.
Annað:- Efsta hæð með fallegu útsýni
- Björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð
- Þrjú góð svefnherbergi
- Suðursvalir
- Gólfhiti í allri íbúðinni
- Lyfta í húsinu
- Mynddyrasími
- Sérgeymsla á jarðhæð
- Gott aðgengi í og úr hverfinu
- Leikskóli í byggingu í næsta nágrenni
Húsið er staðsett nyrst í Hagahverfinu á vinsælum og fjölskylduvænum stað. Um er að ræða sérlega aðlaðandi eign sem hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem leita að þægilegri og nútímalegri búsetu í björtu umhverfi.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.