Opið hús verður auglýst síðar. Vernharð Þorleifsson lgf kynnir ákaflega fallegt og kósý sumarhús í Grímsnesinu. Nánar tiltekið við A-götu 6. Einungis 60 mínútur frá Reykjavík og staðsett rétt við Þrastalund. Húsið er skráð 65,1 m2 hjá HMS. Lóðin er 2000 m2 eignarlóð ásamt hlutdeild í 5071 m2 sameiginlegu óskiptu landi, samtals 7071 m2. Hitaveita er í húsinu. Félag húseigenda á svæðinu sér um að halda vegum opnum yfir vetrartímann og hægt er að vera allt árið á staðnum. Búið að draga fyrir rafhleðslu. Heitur pottur, sólstofa og kamína. Pallurinn umlykur bústaðinn á tvo vegu. Kyrrlátur og afskaplega fallegur staður.
Nánari lýsing: Bústaðurinn er ótrúlega vinalegur og notalegur. Hægt er að loka forstofunni en annars er stofa og eldhús í opnu rými. Kamína er í stofunni og upprunaleg eldhús viðarinnrétting gefur fallegan stíl. Tvö svefnherbergi. Annað með innbyggðum kojum. Geymsla er á milli herbergjanna. Snyrtilegt baðherbergi með sturtu. Sólstofa er áföst húsinu sem gengið er inn í af pallinum. Útgengi er úr stofu á verönd og í heita pottinn (hitaveita). Húsið hvílir í trjálundi sem heldur vel utan um þá sem þar dvelja. Það eru tvær útigeymslur, önnur þeirra er áföst húsinu. Þar er inntakið og lagnagrindin og hún er því upphituð. Hin geymslan er ca. 15 fm skúr sem er sérstæður og notaður var sem geymsla fyrir golfbíl. Í honum er rafmagn og því hægt að hita hann með rafmagnsofni. Lóðin er afskaplega vel hirt með háum trjám og lággróðri. Einnig eru þar gróðurker fyrir ræktun og fánastöng. Megnið af búslóðinni getur fylgt með.
Hér er yndisleg eign á ferðinni, ein af þessum sem maður verður að koma inn í til að upplifa hlýjuna og andann í húsinu. Stór leikvöllur er í göngufæri innan svæðisins þar sem hægt er að fara í leiki, spila fótbolta og körfubolta.
Frábær staðsetning í Grímsnesinu. Þrastalundur er í tveggja mínútna fjarlægð og mikið um fallega staði og þjónustu í nágrenninu. Golfvöllurinn í Öndverðanesi er í 4 mín fjarlægð. Stuttur vegur liggur af Þingvallavegi og aðkoman inn á svæðið er um lokað bómuhlið sem opnað er með síma.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
26/06/2025
39.750.000 kr.
29.900.000 kr.
65.1 m2
459.293 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.