Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir -Sumarhús á einstöku eignarlandi c.a. 1 km frá Þrastarlundi.
Landið liggur hærra upp en annað land í kring og því einstakt útsýni að hafa frá landinu.
Lýsing eignar:Sumarbústaðurinn samanstendur af stofu/ eldhúsi með lítilli kamínu, tveimur herbergjum og salerni með sturtuklefa.
Húsið er kynnt með hitaveitu og er lítið rými steypt að hluta undir húsinu. Verönd er í kringum húsið og heitur pottur.
Eldri minni sumarkofi er einnig á landinu.
Landið er 12.250 m
2 að stærð og skógi vaxið að hluta. Sameiginlegt hlið er með einum öðrum bústað.
Sjá staðsetninguEignin er frábærlega staðsett og stutt að sækja ýmsar náttúruperlur.
Nánari upplýsingar veitirSigþrúður J. Tómasdóttir
sími 892-0099 sissu@litlafasteignasalan.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.