Eignamiðlun kynnir:
Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í nýlegu fjölbýlishúsi í Móabyggð í Þorlákshöfn. Eignin er staðsett á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, íþróttasvæði, þjónustu og fjölbreytta útivist.
Húsið var byggt árið 2023 og er steinsteypt. Samkvæmt skráningu HMS er eignin samtals 94,9 fm, þar af 89,6 fm íbúð og 5,3 fm geymsla. Eignin skiptst í anddyri, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymsla í sameign.Nánari lýsing : Gengið inn um
sérinngang.Rúmgott
anddyri með góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa, bjart alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda og opna heild. Frá stofu er útgengt á hellulagða, skjólgóða verönd til suðurs með skjólveggjum. Á veröndinni er bæði innbyggð grillgeymsla og köld útigeymsla.
Eldhús er með góðu skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja ásamt AEG helluborði og ofni.
Hjónaherbergi er stórum herbergi með rúmgóðum fataskáp. Sérsmíðuð hilla fylgir.
Herbergi II er með stórum fataskáp ásamt sérsmíðuðu skrifborði og geymsluskáp.
Herbergi III er með sérsmíðuðu innbyggðu rúmi og tvöföldum efri skápum.
Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni, sturtu, vaskinnréttingu, handklæðaskáp og handklæðaofni.
Sér þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, innbyggðum frystiskáp, handklæðaofni og glugga.
Harðparket er á anddyri, alrými og svefnherbergjum en flísar á baðherbergi og í þvottahúsi.
Sérgeymsla er staðsett í sameign ásamt sameiginlegu inntaksrými.
Klettamói 7 er sex íbúða, tveggja hæða fjölbýlishús byggt árið 2023. Berandi innveggir, útveggir og milligólf eru staðsteypt og stigar, svalir og svalagangar eru úr steinsteypu eða steypueiningum með fullbúnu yfirborði.
Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir að hluta með smábáru- og sléttri málmklæðningu. Þakið er viðsnúið með PVC-þakdúk. Framan við húsið liggur hellulögð gönguleið.
Við hönnun hverfisins var lögð áhersla á hlýlegt og fjölskylduvænt umhverfi þar sem vistgötur tengja saman lágreista byggð og græn svæði.
Merkt bílastæði fylgir eigninni og gert er ráð fyrir möguleika á uppsetningu hleðslustöðvar. Starfrækt húsfélag er í húsinu og lóðin er 741,6 fm sameiginleg leigulóð í eigu Sveitarfélagsins Ölfuss.
Nánari upplýsingar veitir Alfreð Valencia löggildur fasteignasali í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook