Borg fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt sumarhús/heilsárshús og gestahús ásamt bátaskýli við Hjarðholtsveg í Kjós. Aðalhúsið skiptist í miðhæðinni : forstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, rúmgott alrými með stofu og eldhúsi með útgangi út á stóra timburlagðaverönd með heitum potti, geymslu. Á efri hæð er rúmgóð hjónasvíta með baðherbergi inn af. Í kjallara er óskráð rými með innkeyrslu hurð og skiptist herbergi, geymslu, leikherbergi, bílskúr og baðherbergi með saunklefa inn af. Lóðin er gróinn með útsýni út á vatnið og timbur pöllum ásamt heitum potti. Gestahús er staðsett fyrir neðan húsið. Húsið á hlutdeild í bátaskýli við vatnið. Nánari lýsing: Komið er inn á flísalagða forstofu með fataskápum, þaðan er gengið inn á milligang þaðan sem farið er í önnur rými í húsinu. Í húsinu er sérsmíðaðar eikar innréttingar, skápar og hurðar. Stofa er björt með stórum gluggum og myndar alrými með opnu eldhúsi og eyju. Aukin lofthæð er í alrýminu. Úr alrýminu er gengið út á stóra timburlagða verönd með heitum potti og fallegu útsýni yfir vatnið. Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi og fataskápum. Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi, innréttingu og sturtuklefa. Útgangur er úr baðherbergi beint út á pallinn. Geymsla/þvottahús er á hæðinni með innréttingu. Hjónasvíta er á efrihæðinni/millilofti með parketi og baðherbergi inn af með flísum og baðkari. Í kjallara er rúmgóður bílskúr með innkeyrsluhurð og lökkuðu gólfi. Baðherbergi er í kjallara með sturtuklefa og saunu inn af. Tvö herbergi eru í kjallara, annað rúmgott með gluggum, hitt gluggalaust með parketi á gólfum notað sem geymsla. Gestahús skiptist í alrými með parketi á gólfum og eldhús með viðarinnréttingu með útgangi út á timburlagða verönd. Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi og annað með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og innréttingu. Kjallari er að hluta til óskráður og því heildarstærð á húsinu stærri. Bátaskýli er staðsett niður við vatnið.
Lóðin er með grasflöt,trjágróðri, timburpöllum og steyptu plani öðru megin. Fallegt útsýni er yfir vatnið.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði