SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG ALGJÖRLEGA ENDURNÝJUÐ OG BJÖRT ÍBÚÐ Á EINNI HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI OG SÉRGARÐI FYRIR FRAMAN OG AFTAN HÚS* *FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG GOLF* *NOKKRA MÍN. KEYRSLA Í LA ZENIA BOULEVARD OG Á STRÖNDINA*Björt og vel skipulögð endurnýjuð íbúð á jarðhæð. Sér garður fyrir framan og aftan hús. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, annað þeirra með útgengi út í garð. Eldhús og stofa í opnu björtu rými. Ný tæki í eldhúsi, ásamt þvottavél og uppþvottavél. Baðherbergi með sturtu. Geymsla á lóð. Eignin hefur öll verið endurnýjuð, nýtt gólfefni, nýtt eldhús, nýtt baðherbergi, nýjir skápar, nýjar vatns- og rafmangslagnir. Göngufæri við golf, veitingastaði og verslanir, nokkra mín. keyrsla í La Zenia Boulevard og á ströndina.
Nánari upplýsingar veitir Berta Hawkins, lögg. fasteignasali, í síma 0034 615112869 eða berta@spanareignir.isUmhverfi: Villamartín er þéttbýli sem er þekkt fyrir kyrrð og nálægð við alla nauðsynlega þjónustu, svo sem verslunarsvæði, veitingastaði og íþróttaiðkun. Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast uppgerða eign á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Verð: 225.000 evrur eða 32.600.000 ISK (m.v. gengi 145)Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.
Eiginleikar: endurnýjuð eign, sér garður, stór garður, sér inngangur,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,