ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Ásabraut 6 birt stærð 187.3 fm þar af bílskur 51.3 fm. Alls fjögur svefnherbergi.
Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma
560-5501, tölvupóstur
pall@allt.is.
Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol, rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús, svefnherbergjagangur með þremur svefnhergjum og baðherbergi. Útgengi út á baklóð þar sem er rúmgóður sólpallur ásamt heitum pott. Bílskúr er rúmgóður.
*** 2018 skólp endurnýjað, ásamt lögnum til og frá húsi
*** Dúkur á þaki var endurnýjað 2009 af fyrri eiganda
*** Gluggar endurnýjaðir að hluta af fyrri eiganda
*** 2018 sett dæla í bílskúr, til að hafa salerni þar.
*** Fjögur svefnherbergi
*** Pallur og pottur
*** Flott eign fyrir laghentan aðila
Afhending eignar 1.september 2023. Eignin er í útleigu í dag.
Forstofa með flísum og eldri skáp
Forstofuherbergi eldra parket á gólfi
Stofa og borðstofa með parketi, arin og stórum gluggum.
Eldhús með hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél ásamt borðkrók.
Þvottahús er inn af eldhúsi með eldri innréttingu, dúkur á gólfi, útgengni út á baklóð.
Þrjú svefnherbergi á herbergjagangi. Hjónaherbergi rúmgott með skápum.
Baðherbergi er með flísalögðu niðurgerðu baðkari, glugga og eldri innréttingu.
Bílskúr sem möguleiki er að innrétta t.d sem aukaíbúð. Birt stærð 51.3 fm
Húsið er sérlega vel staðsett nálægt grunnskóla Grindavíkur, leikskóli stutt frá. Húsið stendur hátt og er því gott útsýni úr húsinu. Stór lóð er í kringum húsið og skjólsöm verönd með heitum pott.
Mikil tækifæri eru í eigninni.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.