Fasteignaleitin
Skráð 6. júní 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Punta Prima

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
66.600.000 kr.
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
600110324
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Þrennar svalir með sjávarsýn
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
 SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Á STRÖND - GÖNGUFÆRI Í VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI*

Vandaðar og fallegar 3ja og 4ra herb. íbúðir í lyftublokk á frábærum stað við Punta Prima ströndina, stutt frá La Zenia Boulevard og Torrevieja, ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvelli. Sjávarsýn úr öllum íbúðum og aðeins nokkur skref á ströndina. Fallegur, gróinn sundlaugargarður. Frábærir veitingastaðir í örstuttu göngufæri. Gróið og fallegt umhverfi. 
Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð við sjóinn.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða glæsilegar 3ja og 4ra herb. íbúðir í vönduðum og fallegum fjölbýlishúsum alveg niður við Punta Prima ströndin.  Grænt og fallegt umhverfi í vel hönnuðum sundlaugargarði. Infinity sundlaug og upphituð sundlaug, heitur pottur og veitingastaður í garðinum. Leiksvæði fyrir börnin, góð aðstaða fyrir slökun og hvíld, líkamsrækt og endurnæringu líkama og sálar. Örstutt göngufæri á ströndina, þar sem hægt er að busla í sjónum eða setjast niður á skemmtilega veitingastaði. Nautilus og Punta Prima restaurant veitingastaðirnir eru í ca. 2-5 mín göngufæri og ca. 10 mín göngufæri á Asia Kitchen og fleiri góða veitingastaði við Punta Prima hringtorgið.

Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur  svefnherbergjum þe. rúmgóðu hjónaherbergi með sér baðherbergi og einu eða tveimur öðrum góðum svefnherbergjum og baðherbergi. Góð stofa/alrými og fallegt eldhús. Góðar svalir með sjávarsýn. Íbúðum með tveimur svefnherbergjum eru tvennar svalir, íbúðum með þremur svefnherbergjum fylgja þrennar svalir.
Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Hiti í gólfum á baðherbergjum.

Stæði í bílakjallara fylgir ásamt sér geymslu.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

Aðeins nokkur skref eru á fallega strönd sem liggur að Miðjarðarhafinu og þaðan eru göngu og hjólreiðastígar til Torrevieja og Playa Flamenca, La Zenia ströndina og Cabo Roig ströndina. 
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri á Punta Prima svæðinu. La Zenia Boulevard,  glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða er í ca. 5 mín. akstursfjarlægð. Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýjar og vandaðar íbúðir á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.
Aðeins örfáar íbúðir eftir.

Verð:
Íbúðö með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 444.000 Evrum  (ISK 66.600.000 gengi 1Evra=150 ISK) + 10% skattur og ca.3% kostn. við kaupin.
Íbúð með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 574.000 Evrum (ISK 1Evra=150ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir. 

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, ný eign, 
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
600110324
Fasteignanúmer
600110324
Fasteignanúmer
600110324

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dolores
SPÁNAREIGNIR - Dolores
Spánn - Costa Blanca
183 m2
Einbýlishús
423
352 þ.kr./m2
64.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
122 m2
Einbýlishús
423
531 þ.kr./m2
64.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
110 m2
Fjölbýlishús
423
613 þ.kr./m2
67.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
168 m2
Fjölbýlishús
423
415 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin