Stílhrein 2ja herbergja íbúð á 1. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.
Þrír kaupmöguleikar í boði.
* Hlutdeildarkaup
* Þarft einungis 10% útborgun
* Búseturéttur Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð er 69,5 fm þar af 5,2 fm geymsla í kjallara.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1. Nánari lýsing:
Í
anddyri er góður fataskápur.
Gengið er beint inn í rúmgott
alrými með
eldhúsi og
stofu/borðstofu með útgengi á
suðursvalir. Hvít eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki.
Rúmgott
svefnherbergi með góðum fataskápum.
Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur með lýsingu. Krómuð blöndunartæki. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0055.
Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar
hjóla- og vagnageymslur og
bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.