Fasteignaleitin
Skráð 31. okt. 2026

Hafnarberg 28

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
108.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.600.000 kr.
Fermetraverð
612.132 kr./m2
Fasteignamat
58.100.000 kr.
Brunabótamat
57.400.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
8933276www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 2002
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2258861
Landnúmer
192182
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagðar í lagi.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Upprunalegar.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi.
Þak
Sagt í lagi.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursólpallur.
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Burðarsúlur við inngang 2027. 
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og kynna í einkasölu Hafnarberg 28, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 3ja herbergja miðjuaðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á góðum stað í hjarta Þorlákshafnar. Birt stærð eignar er 108,8 fm og þar af er íbúðarhluti 78,8 fm og bílskúr 30 fm.  Fallegur garður með suður sólpall. Húsið stendur á góðum stað í grónu íbúðarhverfi miðsvæðis í Þorlákshöfn, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og aðra helstu þjónustu.

Eignin býður upp á bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Eldhúsið er með nýrri, hvítri innréttingu og úr stofu er útgengt á sólpall til suðurs. Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi, sem eykur þægindi við daglega notkun.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar: Eignin skiptist í anddyri, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og innangengan bílskúr með geymsluaðstöðu.

Lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengi út á suður sólpall, parket á gólfi. 
Eldhús: Í alrými, með nýrri hvítri innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, AEG bakaraofn, örbylgjuofn, háfur, helluborð, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu, walk-in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og inn í sturtu. 
Þvottahús: Skápur og skolvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gönguhurð inn í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr / geymsla: Bílskúrinn er 30 fm, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi, rafdrifin bílskúrhurðaopnari, hiti, kalt vatn, epoxy á gólfi. Infrarauður klefi í bílskúrnum fylgir með. Geymsla, búið er að opna úr bílskúr inn í geymslu, gönguhurð út á suður sólpall, flísar á gólfi. 

Húsið: Er byggt 2002 og er timburhús frá SG hús á Selfossi. 
Lóð: Framan við húsið eru malbikuð bílastæði. Á suðurhlið eignarinnar er grasflöt ca. 50 fm. sólpallur með heitum potti sem skapar góða aðstöðu til útiveru og afslöppunar.

Hafnarberg 28 er áhugaverður kostur fyrir þá sem leita að vel skipulögðu raðhúsi á einni hæð með góðri nýtingu fermetra, innangengum bílskúr og útisvæði til suðurs. Hér fara saman þægilegt skipulag, björt íverurými og góð staðsetning í hjarta Þorlákshafnar.

Umrædd fasteign er í eigu bróðurs Hólmars Björns Sigþórssonar starfsmanns Helgafells fasteignasölu ehf, en skv. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa ber að upplýsa um tengsl fasteignasala við eiganda.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/02/200916.465.000 kr.20.621.000 kr.108.8 m2189.531 kr.Já
12/12/200714.280.000 kr.19.700.000 kr.108.8 m2181.066 kr.Já
29/05/200714.280.000 kr.18.800.000 kr.108.8 m2172.794 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2002
Fasteignanúmer
2258861
Byggingarefni
Timbur

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 50A
3D Sýn
Skoða eignina Skipholt 50A
Skipholt 50A
105 Reykjavík
106,7 m2
Fjölbýlishús
312
806 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Reykjastræti 7
Reykjastræti 7
101 Reykjavík
102,3 m2
Fjölbýlishús
211
1320 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Lambamýri 1
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lambamýri 1
Lambamýri 1
225 Garðabær
114 m2
Fjölbýlishús
312
876 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Kópavogsbraut 99
3D Sýn
Kópavogsbraut 99
200 Kópavogur
122,5 m2
Hæð
513
807 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin