Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2026

Laugavegur 96

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
145.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
684.716 kr./m2
Fasteignamat
97.100.000 kr.
Brunabótamat
78.600.000 kr.
VG
Vilborg Gunnarsdóttir
http://valholl.isEignalisti
Byggt 1967
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
2005512
Landnúmer
101643
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / rafmagnstafla endurnýjuð í íbúð.
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Valhöll og Vilborg Gunnarsdóttir, lgfs kynna nýtt í einasölu:
GLÆSILEG 145,9 FM PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ MILLILOFTI VIÐ LAUGAVEG 96, 101 REYKJAVÍK. 
  • EINSTAKLEGA SKJÓLSÆLAR 20 M2 SUÐURSVALIR
  • BJART OG OPIÐ ALRÝMI MEÐ AUKINNI LOFTHÆÐ ALLT AÐ 5,2 METRAR
  • VANDAÐAR ÍTALSKAR FLÍSAR Á GÓLFI ALRÝMIS
  • TVÖ SVEFNHERBERGI AUK FATAHERBERGIS
  • SÉRSMÍÐAÐ STIGAHANDRIÐ ÚR SMÍÐAJÁRNI
Íbúðin samanstendur af 106 m2 hæð og millilofti sem er 39,6 m2.
Neðri hæð; Forstofa, snyrting,geymsla, eldhús, stofa og svalir.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi og opið rými (inni svalir)  Efri hæðin er skráð 39,6 m2 en er með nokkuð stærri gólfflöt þar sem hluti hennar er undir súð.
Nánari lýsing:
Gengið er inn frá Laugaveginum og upp á 3.hæð.
Forstofa/hol með flísum á gólfi. Sérsmíðaðir skápar inn af forstofu.
Eldhús / borðstofa / stofa í einstaklega björtu opnu alrými með flísum á gólfi. Mikil lofthæð og stórir gluggar til norðurs frá eldhúsi og til suðurs úr stofu.
Eldhús með vandaðri sérsmíðaðri innréttingu, Miele ofni, helluborði og háf. Borðpalatan er granít. Innfelld lýsing í lofti. 
Borðstofa skilur að stofu og eldhús.
Stofan er einstaklega björt með mikilli lofthæð.  Gengið er upp tröppur frá stofu þaðan sem gengið er út á rúmgóðar suðursvalir.
Gestasalerni með marmaraflísum í hólf og gólf. Innrétting með borðplötu úr íslensku blágrýti.
Geymsla inn af gestasalerni.
Suðursvalir með fallegu útsýni til suðurs þar sem sjá má í Hallgrímskirkju sem er í göngufæri.
Á gólfum neðri hæðar, stiga, palli og gluggakistum er marmari og íslenskt blágrýti.
Gólfhiti er í alrými.
2.hæð / milliloft er í norðurhluta íbúðarinnar.
Gengið er upp fallegan stiga með sérsmíðuðu smíðajárnshandriði.
Innisvalir með innbyggðum bókahillum.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi. Þakgluggi til norðurs með opnanlegu fagi.
Baðherbergi er inn af hjónaherbergi með sturtu sem er flísalögð með granít flísum og marmara á veggjum. Upphengt salerni og sérsmíðuð innrétting með granít borðplötu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í baðherberginu. 
Fataherbergi með parketi á gólfi og glugga til norðurs.
Svefnherbergi með parketi á gólfi. Gluggi sem vísar í átt til stofu.
Á efri hæðinni eru opnanlegir stóri þakgluggar og einstaklega fallegt útsýni til norðurs yfir Faxaflóa og Esju.  Gólfefni er gegnheilt hnotuparket. 

Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir, lgfs/ s.891-8660 / vilborg@valholl.is

Einstaklega falleg eign sem vert er að skoða.
UM VIÐHALD EIGNARINNAR:
Á árunum 2002-2006 var öll eignin endurnýjuð skv. neðangr.að sögn seljanda.
  • Gluggar og gler endurnýjað.
  • Allt rafmagn var endurnýjað.
  • Baðherbergi:  Innréttingar sérsmíðaðar, blöndunartæki endurnýjuð ásamt pípulögnum og gólfefni.
  • Eldhús:  Sér smíðaðar innréttingar og eldhústækin endurnýjuð. (Miele)
  • Gólfefni:  Ítalskar flísar og blágrýti. Gólfhiti á neðrihæð (alrými) Milliloft er með gegnheillu hnotuparketi.
Annað: Hljóðdempun og hljóðeinangrun eru mjög góð í íbúðinni þar sem hún var áður bíósalur.  

Eignin er skráð 2ja herbergja skv. FMR en útbúið hefur verið annað herbergi á stigapalli á efri hæð með glugga sem opnast inn í alrými. 
Íbúðin er á 3.  hæð alls 145,9 m2 og samanstendur af 106 m2 hæð með millilofti sem er 39,6 m2.  
Milliloft er með stærri gólfflöt þar sem hluti er undir súð.

Sjón er sögu ríkari.

Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali/ s.891-8660 / vilborg@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Sérstaklega undanþegið fylgifé:
[tilgreina hluti sem ekki eiga að fylgja, s.s. upphengdir skápar, hleðslustöð fyrir bíl, gervihnattadiskur o.sf.v]

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.Sérstaklega undanþegið fylgifé:
[tilgreina hluti sem ekki eiga að fylgja, s.s. upphengdir skápar, hleðslustöð fyrir bíl, gervihnattadiskur o.sf.v]
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/04/202265.500.000 kr.89.900.000 kr.145.9 m2616.175 kr.Já
24/02/202265.500.000 kr.90.000.000 kr.145.9 m2616.860 kr.Já
15/02/201860.050.000 kr.255.000.000 kr.578.5 m2440.795 kr.Nei
14/10/201644.400.000 kr.66.700.000 kr.145.9 m2457.162 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg - Þaksvalir (602)
Efsta hæð
Laugaborg.jpg
Laugaborg - Þaksvalir (602)
105 Reykjavík
140.7 m2
Fjölbýlishús
523
1507 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Skoða eignina Móstekkur 4b 102
IMG_1392 Large.jpeg
Móstekkur 4b 102
800 Selfoss
132.5 m2
Fjölbýlishús
413
588 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Bræðraborgarstígur 13
Opið hús:26. sept. kl 12:30-13:00
Bræðraborgarstígur 13
101 Reykjavík
84.7 m2
Fjölbýlishús
312
908 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Melgerði 31
Skoða eignina Melgerði 31
Melgerði 31
108 Reykjavík
143.1 m2
Fjölbýlishús
624
824 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin