Ásberg fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt einbýlishús með bílskúr við Sólvelli í Grindavík.
Húsið getur verið laust við kaupsamning.
Nánari lýsing; Húsið er 118 m² og bílskúr 44,4 m². heildarstærð eignar er 162,4 m².
Stutt í alla þjónustu, botnlangagata.
Anddyri með flísum á gólfi, hitalögn og nýlegur fataskápur.
Hol með flísum á gólfi og hitalögn.
Stofa og borðstofa með flísum á gólfi, hurð út á verönd. Afgirt timbur verönd með heitum potti.
Eldhús með flísum á gólfi, hitalögn í gólfi, nýleg innréttingu, helluborð, ofn, vifta og uppvöskunarvél.
Þvottahús með flísum á gólfi, hitalögn í gólfi, innrétting, hurð út á hellulagða stétt.
Hjónaherbergi með flísum á gólfi og fataskápur. Tvö barnaherbergi með flísum á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, eikar innrétting, skápur, upphengt klósett, sturta. Hitalögn í gólfi á baðherbergi.
Hellulagt bílaplan með hitlögn, hellulagðar stéttar fyrir framan anddyri með hitalögn.
Búið að endurnýja allar innihurðar í húsinu. Búið að endurnýja neysluvatnslagnir.
Búið að endurnýja timbur á þakkanti hússins.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837,
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837,
Jón Gunnar Jónsson asberg@asberg.is
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.