Fasteignaleitin
Opið hús:07. júní kl 13:00-14:00
Skráð 3. júní 2026

Eirhöfði 7A íb.401

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
188.5 m2
4 Herb.
Verð
215.000.000 kr.
Fermetraverð
1.140.584 kr./m2
Fasteignamat
132.900.000 kr.
Brunabótamat
110.720.000 kr.
Garður
Bílskúr
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534533
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.
Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman.  Heimasíða verkefnisins - smella hér!
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20

Íbúð 0401 er glæsileg og einstaklega vönduð 4ra herbergja þakíbúð á 4. hæð, samtals 188,4 fm að stærð, þar af er sérgeymsla 8,7 fm.
Íbúðin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpsstofu, gestasalerni, baðherbergi, þvottahús, anddyri og afar rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu ásamt sérgeymslu.
Íbúðin er hönnuð af Rut Kára og einkennist af vandaðri hönnun, fallegum efnisvali og einstaklega glæsilegum rýmum. Miðpunktur heimilisins er rúmgott 56,7 fm alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda opið og bjart samverurými. Stórir gluggar á fleiri en eina hlið tryggja framúrskarandi birtu og skapa fallega tengingu við útisvæði íbúðarinnar.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, þar af er rúmgott hjónaherbergi 20,2 fm, annað herbergi 14,6 fm og þriðja herbergið 8,7 fm. Auk þess er sérstök 8,0 fm sjónvarpsstofa sem nýtast getur sem fjölskyldurými, vinnuaðstaða eða afþreyingarrými. Íbúðinni fylgir glæsilegt baðherbergi ásamt sér gestasalerni og sér þvottahúsi.
Íbúðin er afhent með sérsmíðuðum Voke3 innréttingum í litnum Kasmír grár, Quartz borðplötum, Miele heimilistækjum og vönduðum GROHE blöndunartækjum. Flísalögð votrými, vélræn loftræsting og vandaður frágangur undirstrika gæði eignarinnar og skapa nútímalegt, hlýlegt og tímalaust yfirbragð.
Auk 5,1 fm svala fylgja íbúðinni einstakar 77,9 fm þaksvalir sem bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir borgina, til Snæfellsjökuls og víðar. Þar skapast einstakt tækifæri til útivistar, samveru og afslöppunar.

Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.

Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534533
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
07
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.920.000 kr.
Byggt 2025
29.4 m2
Fasteignanúmer
2534533
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
-1
Númer eignar
49
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.000.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tangarhöfði 2
Til leigu
Skoða eignina Tangarhöfði 2
Tangarhöfði 2
110 Reykjavík
883.9 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 94.600.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Bjarkardalur 6b
Bílskúr
Skoða eignina Bjarkardalur 6b
Bjarkardalur 6b
260 Reykjanesbær
130.3 m2
Fjölbýlishús
322
636 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Árskógar 6
Opið hús:05. júní kl 12:00-12:30
Skoða eignina Árskógar 6
Árskógar 6
109 Reykjavík
94.2 m2
Fjölbýlishús
312
807 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Skoða eignina Ástjörn 13
Skoða eignina Ástjörn 13
Ástjörn 13
800 Selfoss
87.8 m2
Fjölbýlishús
312
689 þ.kr./m2
60.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin