Fasteignaleitin
Skráð 23. ágúst 2026

Holtsvegur 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
108.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
773.272 kr./m2
Brunabótamat
74.150.000 kr.
Byggt 2017
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
23542704
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með stórum svefnherbergjum, aukinni lofthæð og skjólgóðum garðsvölum í nýlegu lyftuhúsi (bygg. ár 2017) að Holtsvegi 10, í Urriðaholti Garðabæ. Eignin er skráð 108,5m2 að stærð, þar af 100,1m2 íbúðarými og 8,4m2 geymsla, og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, tveimur stórum svefnherbergjum og baðherbergi auk sérgeymslu í kjallara og sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Eldhús og stofa eru í opnu alrými með útgengi á sólríkan og skjólgóðan sérafnotareit til suðurs. Falleg og vel skipulögð íbúð í nýlegu hverfi. Ath. Íbúðin getur verið laus við undirritun kaupsamnings.

Nánari lýsing.

Anddyri: Þrefaldur fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð, mikið skápapláss, innfelld uppþvottavél og ísskápur, eyja með rúmgóðum skúffum, helluborði og gufugleypi. 
Stofa: Björt og rúmgóð með, gólfsíðum gluggum, parketi á gólfi og útgengi á sérafnotareit eignar. 
Svefnherbergi: 18,7 fm að stærð, fataskápar innan herbergis, gluggar á tvo vegu, parket á gólfi.
Svefnherbergi: 13.6 fm að stærð, fataskápar innan herbergis, gluggi til vesturs, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerskilrúmi, vegghengt WC og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: Í anddyri eru flísar en teppi í stigahúsi. Í kjallara er sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Fyrir framan hús er sameiginlegur garður, hiti í stéttum og á bílastæði er sameiginleg rafhleðslustöð. 

Innréttingar voru hannaðar af innanhússhönnuðunum Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttur og voru sérsmíðaðar af Formus. 

Falleg og vel skipulögð eign í nýlegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is

                                                                          
 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambamýri 5
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:01. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lambamýri 5
Lambamýri 5
225 Garðabær
114.1 m2
Fjölbýlishús
312
876 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Kinnargata 92
Opið hús:03. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kinnargata 92
Kinnargata 92
210 Garðabær
119 m2
Fjölbýlishús
412
1092 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Álalind 1
Skoða eignina Álalind 1
Álalind 1
201 Kópavogur
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
885 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 305
Baughamar 5 íb. 305
221 Hafnarfjörður
92.1 m2
Fjölbýlishús
32
749 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin