Fasteignaleitin
Skráð 4. apríl 2024

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
407 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
142.800.000 kr.
Fermetraverð
350.860 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
407040424
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stórar svalir með golf og sjávarsýn og auk þess stór þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR PENHOUSE ÍBÚÐIR MEÐ MIKLU ÚTIRÝMI - STÓRBROTIÐ ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLL OG TIL SJÁVAR*

Glæsilegar og vel hannaðar Penthouse íbúðir á Las Colinas golfsvæðinu með einstöku útsýni  yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóðar íbúðir,  þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og gestasnyrting. Rúmgóð og björt stofa, opin við eldhús með vandaðri innréttingu. Stórar svalir með frábæru útsýni og stór sér þakverönd þar sem hægt er að hafa heitan pott. Tvö sér bílastæði í bílakjallara ásamt geymslu.
 
Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður. Án nokkurs vafa með flottustu íbúðunum á Las Colinas svæðinu í dag.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 og Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. karl@spanareignir.is


Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

Verð miðað við gengi 1 Evra=145ISK.
Penthouse íbúðirnar eru 169 fm. + svalir 120 fm. + sér þaksvalir 118 fm. Samtals 407 fm. sérafnotarými.
Auk þess fylgja tvö bílastæði í bílakjallara og rúmgóð sér geymsla.
Verð frá 985.000 Evrur (ISK 142.800.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.


Á sama stað er líka hægt að velja:
Íbúð með 2 svefnh. + 2 baðh. 
Verð frá 345.000 Evrum (ISK 50.000.000) + kostn. við kaupin
Íbúð 84 fm. + svalir 17 fm. Samtals 101 sérafnotaflötur.

Einnig eru á sama stað í boði Íbúðir með 3 svefn. + 2 baðh.
Verð frá 475.000 evrur (ISK 68.800.000ISK) + kostn. við kaupin.
Íbúð 122 fm. + svalir 31 fm. Samtals 153 fm. sérafnotaflötur.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
407040424
Fasteignanúmer
407040424
Fasteignanúmer
407040424

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin